Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1997, Side 143

Andvari - 01.01.1997, Side 143
ANDVARI INNANGARÐS OG UTAN 141 athugasemd að jötnar hafi einnig komið sér upp sínum eigin görðum og nefni Útgarð, heimkynni jötunsins Útgarða-Loka og hirðar hans. Því yrði þá til að svara að á þeim stað var ekki allt sem sýndist þar sem heimamenn gerðu gestum sínum sjónhverfingar, enda sagan um Útgarð hluti af Gylfa- ginningu sem er einn blekkingarvefur frá upphafi til enda eins og höf- undurinn, Snorri Sturluson, tekur sérstaklega fram.5 Enn hika ég ögn við að taka mér orðið lauslœti í munn en staðhæfi engu að síður að í Ásgarði hafi það verið talin lausung að stofna til mægða við utangarðsfólk enda leiddu slíkar tengdir einatt til óhamingju og stórslysa. Frjósemisgoðið Freyr, sem æsir höfðu að vísu fengið frá Vönum, sá eitt sinn alla leið inn í Jötunheima og festi sjónar á lostfagurri tröllkonu, Gerði Gymisdóttur, og varð heltekinn slíkum ástarbríma að hann kvaðst eigi myndi „lengi lifa, ef hann skyldi eigi ná henni.“ Stefnumót við hina mátt- ugu gýgi og jötunsdóttur varð Frey gaman í dýrara lagi og Ieiddi til dauða hans í ragnarökum. í þessu dæmi jafngildir lausung eða þá jafnvel lauslœti því sem þeir í Hollywood nefna fatal love. Banvæn ást þeirra Freys Njarð- arsonar og Gerðar Gymisdóttur mætti gjarna koma til nánari umræðu því að þau birtast rétt sem ein hjónakorn hjá Snorra Sturlusyni í Heimskringlu og eiga að afkomendum konunga á Norðurlöndum. Megum við þá vera minnug frægrar línu í þjóðhátíðarkvæði Davíðs Stefánssonar þar sem hann ávarpar forfeður okkar, landnámsmennina íslensku sem „hetjur af kon- ungakyni“ og þá einnig þess að víslega hafi þær hinar sömu hetjur flutt með sér út hingað drjúgan skammt af fatal love (banvænni ást) í erfðavísum sínum. Ekki er allt sem sýnist. Þó Óðinn væri bæði voldugur og snjall hvíldi sá skuggi yfir ættarmeiði hans og uppruna að í móðurkyn var hann af illþýði og utangarðsfólki kominn. Að föðurætt hans verður ekki fundið. Afinn þeim megin nefndist Búri og hafði sá á þrem dögum vaxið upp af söltum hrímsteinum sem kýrin Auðumla sleikti. Búri var „fagur álitum, mikill og máttugur,“ segir í Snorra-Eddu. „Hann gat son þann er Borr hét,“ segir enn í sömu bók. Hvort einhver lausung fylgdi þeim getnaði verður ekki greint þar sem heimildir um móðerni Bors skortir fullkomlega. Með fað- erni hans eitt í huga hafa fræðimenn þó ætlað honum mannkosti sem nægðu til upptöku í tölu goða eða ása, svona eftir á að hyggja. Engu að síð- ur fer því fjarri að tekist hafi að skapa þessum mikla forföður viðunandi mannorð því að hann gekk að eiga utangarðskonuna Bestlu, dóttur Böl- þorns jötuns. Fullvíst er að þegar fram liðu stundir fylgdu slíkum ráðahag lausung og háski. í þessu tilviki er þó fremur erfitt í að leggja siðferðilegt mat á hjúskapinn þar sem svo virðist að ásynjur væru ekki enn komnar á stjá þegar Borr fór að skyggnast um eftir kvonfangi. Tel ég líklegast að hann hafi átt einskis annars úrkosta en að beina sjónum í Jötunheima.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.