Andvari - 01.01.1954, Side 10
6
Jón Eyþórsson
ANDVARI
gerði í Selvogi. Móðir Sigurðar skólastjóra var Sigríður Gísladóttir
frá Utey í Laugardal, Sæmundssonar bónda á Stóruborg í Gríms-
nesi.
Móðurfaðir Steinþórs, Magnús útvegsbóndi Brynjólfsson á
Dysjum á Álftanesi, var alkunnur dugnaðarmaður á sinni tíð og
þótti fyrir öðrum bændum þar syðra. Var hann sæmdur danne-
brogskrossi fyrir forgöngu sína í búskap og sveitarstjóm. Það er
kunnugra manna mál, að Steinþóri bafi svipað mjög til móður-
föður síns, bæði að vallarsýn og skaphöfn.
Sigurður skólastjóri var dugnaðarmaður mikill, að hverju sem
hann gekk. Um mörg ár var liann forseti bæjarstjórnar Reykja-
víkur og stundum settur borgarstjóri. Dugnaði hans við kosn-
ingaundirbúning var við bmgðið. Gamall samberji bans hefur
sagt mér, að Sigurður hafi baft yndi af því að skipuleggja kosn-
ingastörfin og hvergi hlíft sér, meðan þau stóðu yfir. Hann var
mannglöggur með afbrigðum og minnið óbilandi. Var sagt, að
hann hefði jafnan þekkt alla nemendur barnaskólans með nafni
og enn fremur þekkt þá og munað upp frá því.
Móður Steinþórs er svo lýst, að bún væri gáfuð stillingarkona
og góð húsmóðir. Hún var heilsuveil og andaðist á miðjum aldri,
er Steinþór var í menntaskóla.
Steinþór bar æskuheimili sínu gott vitni. Hann var jafnan
bófsamur og viðhafði aldrei stór orð, þótt honum rynni í skap-
Hin einstaka vinnugleði hans og hæfileiki til að skipuleggja, hvort
beldur var leik eða vinnu, hefur efalaust verið erfð að nokkru
leyti, en að nokkru leyti stafað frá handleiðslu föður hans i
æsku.
Foreldrar Steinþórs fluttu á Laufásveg 35 skömmu eftir að
Steinþór fæddist, og þar ólst hann og Guðrún, systir hans,
upp til ársins 1923, er Sigurður Jónsson var skipaður skólastjori
Miðbæjarskóla og fluttist með fjölskyldu sína 1 skólabúsið.
Prófessor Ágúst H. Bjamason fluttist að Laufásvegi 35 um
sama leyti og Sigurður skólastjóri og bjó þar til 1916, er hann