Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 70
66
Bjöm Þórðarson
ANDVARI
lendinga á Vestfjörðum tvö undanfarin ár, þar sem hann „af
náð“ leyfir að vinna svig á ræningjunum, ef færi gefst. Sennilega
hefði þó Ari í Ogri farið sínu fram gegn Gasgognum þar næsta
vetur, þótt konungsleyfi hefði ekki legið fyrir og framfylgt land-
varnaráformi föður síns í Vopnadómi, sem hann og sýndi í verki.
Efalaust hafa margir góðir menn litið á Vopnadóm líkt og
Björn á Skarðsá, en um dóminn sagði hann: „Þetta má halda
hæði skynsamlega, nauðsynlega og röggsamlega dæmt, og hefði ver-
ið þarflegt uppi að halda, og er undur slíkur dómur hefur ekki
framkvæmd fengið um landið, svo menn væru ekki þeir au-
kvisar ætta sinna, að ekkert geri annað en gala og flýja, þó einn
lekabátur að landi kæmi, eða að vera teknir og hentir heima hver
á sínum stað, sem búfé í haga“. Þegar Björn á Skarðsá skrifar
þetta er sá tími liðinn, að íslendingar fengi jafnvel leyfi til að
halda uppi vörn gegn ræningjum. Er lýsing hans á háttemi höf-
uðsmannsins Holgers Rosenkrants en vilja íslendinga til að taka
á móti ræningjunum, sem heimsóttu Bessastaði í júní 1627, næg
sönnun þess. Konungsvaldið kappkostaði uppræting allrar sjálfs-
varnar landsmanna, líkamlega sem andlega, og hversu það hafði
tekizt til fullnustu sýnir alþingishaldið 1618, þegar tveir danskir
herramenn dæmdu einir í lögréttu allra manna mál það sumar,
„og þóttust þá flestir ekki ná íslenzkum lögum“. Þannig farast
samtímamanninum Birni á Skarðsá orð.
Varnir Islendinga sjálfra voru úr sögunni, en Englendingar
útrýmdu ránsvíkingum vegna fiskiskipa sinna á norðurvegum-
Varzla Dana hér var liinsvegar í því fólgin að korna í veg fyrir
viðskipti Islendinga og útlendra fiskimanna. Þessi varzla kostaði
fé, sem bæði konungur og einokunarhafar vildu losna við að
greiða. Henrik Bjelke hugkvæmdist þá að nota ótta alþýðunnar
við Tyrkjann og láta íslendinga sjálfa kaupa og kosta vamar-
skip, sem Danir áttu auðvitað að stýra og stjórna. Þetta áform
tókst ekki. Konungur lagði þá skatt á landið 1667 til þess að
koma upp virki (skanz) á Bessastöðum næsta ár, en Nesjamenn
voru látnir vinna þegnskylduvinnu við þetta varnarvirki landsins.