Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 75
ANDVARI
Herútboð á íslandi og landvarnir íslendinga
71
læknisins og ekki talið það, þar sem hann er sammála meiri
hluta nefndarinnar.
Jafnskjótt sem stiftamtmaður hafði fengið í hendur álitsskjal
meiri hluta nefndarinnar — álit Hjaltalíns hafði hann fengið
nokkrum dögum áður — sendi hann stjóminni álitsgjörð sína,
sem er dags. 26. ágúst 1856. Hann getur þess í upphafi, að þrír
nefndarmanna telji örðugleikana á framkvæmd hins fyrirhugaða
útboðs meiri en hagsmuni þá, er af því megi vænta, en I ljaltalín
telji ráðstöfun þessa svo mikilsverða fyrir ísland, að fallast beri
á hana. Annars fellst stiftamtmaður í einu og öllu á skoðun
meiri hlutans og einnig um það, að útboðsmennina verði að
leysa rir herþjónustunni hér í landi, að henni lokinni, og mundi
því að líkindum ekki verða neinn hagnaður fyrir flotann af þess-
um íslenzku mönnum, því að erfitt mundi reynast, er ófrið bæri
að höndum, að smala þeim saman á höfnum landsins. Ef stjórnin
léti skip vera hér við land, eins og hún hafði látið orð falla um,
yrði kostnaður ríkissjóðs við að sækja útboðsmennina til íslands
og flytja þá þangað aftur viðráðanlegri. En ef koma ætti útboðs-
niönnum í skip hjá kaupmönnum þá kostaði það nú á tímum
30 dali fyrir hvern mann hvora leið. Stiftamtmaður taldi því
avinninginn af hinni umspurðu ráðstöfun ekki mundi samsvara
þeim örðugleikum og kostnaði er framkvæmd hennar yrði sam-
fara, og gæti hann því ekki mælt með uppástungu fjárlaganefnd-
arinnar. En í því falli, að stjórnin teldi allt að einu yfirgnæfandi
ástæður til að leggja þessa fyrirætlun fyrir Alþingi, gerði stift-
amtmaður grein fyrir tillögum sínum um fyrirkomulag og fram-
kvæmd úthoðsins, miðað við einn af þúsundi árlega og þriggja
ára herþjónustutíma, sem ekki er ástæða til að greina hér nán-
ar frá.
Umsögn amtmannsins í norður- og austuramtinu, Péturs Hav-
stein, dags. 22. janúar 1857, var að efni til í öllum aðalatriðum
á sömu lund og álit hins amtmannsins, en í niðurlagi umsagnar
sinnar segir Pétur Havstein: Ef svo fer, að spurningin um útboð
til flotans verður lögð fyrir Alþingi, geta menn átt það hér um