Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 13
ANDVARI
Steinþór Sigurðsson
9
vígur á námsgreinar, en skaraði fram úr í eðlisfræði og stærð-
fræði. Stjörnufræði var lítt kennd í skólanum, en Steinþór gerði
sér leik að því að þekkja stjömuhimininn og læra stjörnufræði
langt fram yfir kröfur skólans. Mun þessi æskuást hans á Uraníu
hafa ráðið miklu um þaÖ, er hann gerði stjömufræði að kjör-
grein sinni, og það var ríkt í Steinþóri að leggja á nýjar brautir
eða lítt troðnar.
Steinþór hóf háskólanám í Kaupmannahöfn haustið 1923 og
lauk þar meistaraprófi (magister scientiarum) 1929. Auk stjömu-
fræði leysti hann af hendi próf í stærðfræði, eðlisfræði og efna-
fræði. Aðalverkefni hans í stjömufræði var að reikna út braut
smástirnis nokkurs. Er slíkt verk ótrúlega flókið og seinlegt,
enda varð Steinþór að vinna að því margar vikur með 8 stunda
vinnu á dag, hvorki lengur né skemur. Þóttist hann hafa þraut-
reynt, að sér sæktist verkið bezt með þeim vinnutíma.
Mér er að öðm leyti ekki mikið kunnugt urn háskólanám
Steinþórs. En víst er um það, að hann lagði stjömufræðina á
hilluna að námi loknu, enda lítill grundvöllur fyrir þá vísinda-
grein hér á landi. Hann átti kost á starfi erlendis í sambandi við
stjörnufræði, en hafnaði því. Ég hygg, að Steinþór hafi orðið
fyrir nokkrum vonbrigðum af stjörnufræðináminu. Stjörnuvis-
indi við Kaupmannahafnarháskóla beindust aðallega að útreikn-
ingurn á brautum reikistjarna, enda hafa danskir stjörnufræðingar
getið sér góðan orðstír á því sviði. En þótt Steinþór skorti hvorki
stærðfræðigáfu né leikni í flóknum talnareikningi og gengi að
því verki með venjulegum dugnaði, er næsta ólíklegt, að það hafi
fullnægt athafnaþrá hans. Elefði nám hans beinzt meir að hinni
eðlisfræðilegu hlið stjömugeimsins en aðstæður leyfðu við háskól-
ann í Kaupmannahöfn, hygg ég, að Steinþór hefði séð fleiri og
kugstæðari verkefni blasa við á því sviði.
Við kynni mín af Steinþóri varð og verður mér jafnan ráð-
gáta, hvers vegna hann lagði ekki stund á verkfræði eða jarð-
fræði. Þar virtist hugur hans og hendur eiga heima. Kom þetta