Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 51
ANDVARI
Tímatal í jarðsögunni
47
legum ástæðum lítt framkvæmanlegt hér. Hvarfleir er víða að
finna hér neðan við efstu sjávarmörk, en lítiÖ hefur verið gert
að því að telja hvörf. Þó er þess að geta, að Svíinn Hakon
Wadell, annar þeirra Svía, er endurfundu Grímsvötn 1919 og
kölluðu Svíagíg, mældi það sumar fyrir prófessor De Geer, upp-
hafsmann hvarfatímatalsins, fjögur hvarfleirssnið, tvö við Stóru-
Laxá í Hreppum, nærri Sólheimum, og tvö við Valá, skammt
norðvestur af Tindfjallajökli. Kona De Geers, Ebba Hult De
Geer, tengdi snið þessi sænska hvarfatímatalinu, en samkvæmt
þeirri firðtengingu eru Tindfjallahvörfin mynduð á árunum
974—1066 fyrir ísaldarlok sænska tímatalsins, eða fyrir urn
10.000 árum, en hvörfin við Stóru-Laxá eru frá árunurn 1093—
1147 fyrir ísaldarlok. Þarna vantaði því 26 hvörf á milli. Sumarið
1929 mældi Jóhannes Áskelsson nokkur hvarfasnið í Hreppum,
bæði á sarna stað og Wadell og á nærlægum svæðum, bæði við
Búðafoss og Bjarnartungugil. Hvarfatal hans spennir bæði yfir
Tindfjalla- og Hreppahvörf Wadells, og reyndist tala hvarf-
anna þar á milli vera 26, eins og Ebba De Geer hafði spáð.
Styrkir þetta óneitanlega þá skoðun De Geers, að firðtengingar
séu mögulegar, og er leitt, að ekki skyldi haldið áfrarn hvarfatali
hér, þar sem svo vel var fariÖ af stað, en bæði er það, að um
þetta leyti vom margir að verða mjög vantrúaðir á möguleika
firðtenginga, og svo kemur það dl, sem fyrr var að vikið, að
hvarfatal er hér bundið meiri erfiðleikum en víða annars staðar,
og er það m. a. vegna eldgosa með jökulhlaupum, er valda tiufl-
unum á hvarflagamyndun.
Frjógreiningu hefur lítið verið beitt hér. Ég gerði á náms-
árum mínum frjógreiningu á sniði gegnum mýri við Akureyri,
sem ég þó aldrei birti, og í Þjórsárdal notaði ég þessa aðferð
til að sýna fram á kornrækt í dalnum til foma, og kom þá
einnig í ljós, að auðvelt var að finna með frjógreiningu sjálf
landnámsmörkin í jarðvegi nálægt bæjum. Er það vegna þess,
að með tilkomu mannsins og húsdýra hans breytist gróöurinn
skyndilega, birkifrjóum fækkar stórlega, en grasafrjóum fjölgar