Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 80
76
Björn Þórðarson
ANDVARl
þykkir tillögu nefndarinnar um fjármálin, en um útboðið varð
annað uppi.
Um þenna lið tillögunnar urðu miklar umræður, sem að
mörgu leyti eru fróðlegar, en verða þó ekki raktar hér sökum
takmarkaðs rúms Andvara. Allir ræðumenn utan nefndarinnar
voru á einu máli um að fella bæri tillöguna og leiddu að því
mörg rök, auk þeirra sem nefndin sjálf hafði bent á, að mælti
gegn útboðinu. Af hálfu þjóðkjörinna þingmanna var lögð áherzla
á það, hve óeðlilegt og fráleitt það væri af hálfu stjórnarinnar og
ríkisþingsins að setja útboðið að skilyrði fyrir rétti Islendinga til
að ráða fjármálum sínum sjálfir, og með því að samþykkja út-
boðsskyldu bindi þingið landið beinlínis til að taka einnig þátt
í öllum gjöldum til almennra þarfa ríkisins. Konungkjörnu þing-
mennimir, Pétur biskup og Þórður Jónasson, töldu útboð óráð-
legt og vanhugsað, því að þessir fáu íslenzku menn væm alltof
dým verði keyptir fyrir ríkissjóðinn, og þar við bættist, að þegar
mennimir væm komnir aftur heim til íslands, væri ekki unnt
fyrir stjómina að taka til þeirra til vamar, er á þeim þyrfti að
halda, sökum fjarlægðar landsins. Ásgeir Einarsson lét svo um-
mælt meðal annars, að fyrst ríkisþinginu væri svo einkar annt
um að kenna íslendingum sjómennsku, leyfði hann sér að benda
því og stjórninni á, að rétta leiðin í því efni væri að taka sjó-
mannaskólann á ísafirði á náðararma sína og styrkja hann. ís-
lendingum bæri fyrst að koma sér upp þilskipum til fiskveiða,
síðan kaupförum og síðast herskipum, og þá fyrst væri tilefni til
að senda menn héðan á herflota Dana, svo að þeir gæti kennt á
vorurn eigin herskipum. Páll Sigurðsson í Árkvörn leit á málið
á sama veg, að stjórnin yrði að gefa hinum útboðuðu Islending-
um færi á að komast í yfirmannaskóla, svo að hver útboðaður
gæti gert sér von um að standa undir yfirmanni, sem væri landi
þeirra. Fyrr yrðu íslendingar ekki fúsir á að ganga undir útboð.
Framsögumaður nefndarinnar, Vilhjálmur Finsen, hélt aðallega
uppi vörnum fyrir tillögu nefndarinnar, en aðrir nefndarmenn
tóku einnig til máls. Llndir lok umræðnanna hélt forseti þings-