Andvari - 01.01.1954, Blaðsíða 56
52
Sigurður Þórarinsson
ANDVARI
Auk þessara ljósu laga veit ég um tvö á Snæfellsnesi. Úr
vikri annars þeirra er mest af vikursteypu landsins. Bæði eru
þessi lög frá Snæfellsjökli og bæði forsöguleg, og þó ekki rnjög
gömul, en nánar verður ekki ákveðið um aldur þeirra að sinni.
I Skaftafellssýslum er og ljóst lag djúpt í jarðvegi og vafalítið
frá Oræfajökli.
Eru þá talin 11 ljós lög, þar af þrjú aldursákvörðuð af sögu-
legum heimildum, þrjú forsöguleg, sem ég tel aldursákvörðuð
svo, að ekki skakki nema nokkrum hundruðum ára, en meiri
óvissa enn um aldur hinna. Öll eru þessi lög, nema Öskjuaskan
1875, upprunnin á Suðurlandi. Sex af þeim sunnlenzku er einnig
að finna í jarðvegssniðum norðanlands, en hvergi hef ég fundið
þau öll í sama jarðvegssniði néma syðst í Bárðardal og í Suðurár-
botnum. Auk.þess hef ég fundið köggla af líparítvikri við Kröflu
og upp af Skógurn undir Eyjafjöllum, en veit ekki enn neitt um
útbreiðslu eða aldur þess vikurs.
Það er augljóst mál, hvílíka þýðingu það hefur, er rekja skal
jarðsögu landsins eftir lok jökultíma, að vita aldur ofannefndra
öskulaga og fleiri, og vita hann sem nákvæmast. Og nú kemur
Carbon14 aðferðin, sú er ég áður hef að nokkru lýst, eins og
af himnum send, og það er hún raunar í bókstaflegri merkingu.
Með því að tvinna þá aðferð öskulagatímatalinu skapast skil-
yrði til tímatals í íslenzkri jarðsögu, hetri en í flestum, ef ekki
öhum, öðrum löndum, því að vart mun í nokkru öðru landi
fara saman svo mörg eldgos og svo hröð jarðvegsmyndun, en
hröð jarðvegsmyndun er skilyrði fyrir því, að hægt sé að aðgreina
í jarðvegssniðum öskulög, er falla með stuttu millibili. Með
Carbon14 aðferðinni er hægt að ákvarða aldur á öskulagi, t. d.
með því að taka sýnishorn af mó í mómýri hið næsta laginu, og
er þá um leið fengin Carbon14 aldursákvörðun í öllum þeim
jarðvegi í landinu, þar sem þetta öskulag er að finna.
Fyrstu sýnishorn til Carbon14 ákvörðunar voru send héðan
sumarið 1950. Hollenzki jarðfræðingurinn Hospers, sá er fyrr
var getið, sendi til Bandaríkjanna sýnishorn af mó, sem er hið