Andvari - 01.01.1954, Síða 47
ANDVARI
Tímatal í jarðsögunni
43
umtal um gömul lótusfræ úr manchúriskri mýri, sem send iiöfðu
verið til grasafræðings í Washington, er sáði þeim, og sjá, upp
spruttu lótusplöntur. Japanskir fræðimenn töidu fræin vera 50
þúsund ára gömul. En svo fékk Libby þau til athugunar, og ald-
urinn reyndist aðeins 1.000 ár, og er raunar nógu merkilegt, að
lótusplöntur skuli vaxa upp af svo gömlum fræum.
Fullyrða má nú, að Carbon14 aðferðin hafi ekki brugðizt
vonum þeirn, er við hana voru tengdar í upphafi. Nú er þó að
koma dálítið babb í bátinn. Þau sömu vísindi, atómvísindin,
sem gerðu þessa aðferð mögulega, eru nú á góðum vegi með
að torvelda hana eða jafnvel eyðileggja. Þegar fyrir tveimur
árum urðu vísindamenn í Yale þess vísir, að atómsprengingar í
Los Alamos höfðu áhrif á Carbon14 ákvarðanir, og nú hefur
keyrt urn þverbak eftir vetnissprengingarnar, að því er forstjóri
rannsóknarstofunnar í Yale hefur tjáð mér í bréfi. Hefur orðið
að hætta þar við allar aldursákvarðanir í bili.
En annaðhvort fer svo, að hætt verður að fikta við þessa
háskalegu hluti, og er þess þá að vænta, að hið óhugnanlega
geislavirka ryk hverfi smátt og smátt úr andrúmsloftinu, eða þá,
að haldið verður áfram á þeim helvegi, sem farið er að feta, og
skiptir þá litlu máli, hvort tímatal verður mögulegt eða eigi, því
að þá munu senn engir uppi til að telja tíma. En nóg um það.
IL
TÍMATAL í JARÐSÖGU ÍSLANDS.
Áður var getið nokkurra þeirra aðferða, sem beitt liefur verið
til aldursákvarðana í jarðsögunni. Skal nú vikið að tímatali í
jarðsögu Islands.
Um meginhluta þeirrar jarðsögu, allt fram til loka jökul-
tima, get ég verið fáorður. Er þar skemmst að segja, að engar
altækar aldursákvarðanir hafa verið gerðar hér á myndunum frá
þessum tíma, og vitneskja okkar um aldur berggrunns landsins
er cinvörðungu hyggð á hliðstæðum frá öðrum löndum. Gert er
ráð fyrir því, sem tclja má að stappi nærri vissu, að clzti hlá-