Andvari - 01.01.1954, Síða 57
ANDVARI
Tímatal í jarðsögunni
53
næsta undir Elliðaárhrauninu við Reykjavík, rétt sunnan við
brýrnar yfir Elliðaár. Vildi hann vita aldur á hrauninu vegna
segulstefnuathugana sinna. Mórinn reyndist vera 5.300 ± 340
ára, og er það þá einnig nokkurn veginn aldur hraunsins og um
leið Rauðhólanna, sem eru gervigígir á þessu hrauni. Því miður
er ekki hægt að tengja þessa ákvörðun neinu öskulagi, og hefur
hún því mjög staðbundið gildi. Guðmundur Kjartansson mun
hafa sent sýnishom af jarðvegi undan Þjórsárhrauni við Þjórsár-
brú og frá Rauðhól við Hafnarfjörð til Kanada fyrir milligöngu
dr. Áskels Löve, en ekki hafa þau verið aldursákvörðuð enn.
Sumarið 1950 sendi ég þrjú sýnishorn til Geochronometric
Laboratory í Yale fyrir milligöngu prófessors R. F. Flints, for-
manns þeirrar sérfræðinganefndar í Bandaríkjunum, er velur
sýnishom frá ýmsum löndum til aldursákvörðunar. Tvö voru mó-
sýnishom, tekin utan við Glerárþorp í Eyjafirði til aldursákvörð-
unar á efra og neðra ljósa laginu eða H.s og Hr, sem eins og fyrr
getur eru útbreiddustu öskulög hérlendis. Þriðja sýnishomið
var af viðarkoli, sem kom fram undir Laxárhrauninu yngra í
Laxárgljúfri, er sprengt var fyrir aðrennslispípu nýju aflstöðvar-
innar. Þetta Laxárhraun er komið ofan úr Þrengslaborgum,
gígaröð mikilli austan Mývatns, og hefur flætt yfir allt það
svæði, sem nú er Mývatn sunnan Ytri-Flóa, síðan norður Laxár-
dal og Aðaldal allt norður fyrir Fljótsheiði. Þegar þetta hraun
rann norður úr Laxárgljúfri, hefur það flætt glóandi yfir kjarr-
lendi, og við það hefur myndazt viðarkolalag undir því, sem er
nákvæmlega jafngamalt því sjálfu. Þótt ég væri svo heppinn að
fá sýnishom þau, er send voru til Yale, flokkuð í þann flokk
sýnishorna, sem fyrir eiga að ganga, hefur dregizt mjög að fá
þau aldursákvörðuð, og veldur einkum sú truflun, sem orðið
hefur á starfinu vegna atómsprengjutilrauna í Los Alamos og
á Kyrrahafi. En nú í febrúar síðastliðnum vom sýnishom mín
tekin fyrir, og var rétt lokið við aldursákvörðun á einu þeirra,
viðarkolasýnishominu úr Laxárgljúfri, er starfsemin stöðvaðist
vegna vetnissprengingarinnar 1. marz. Það var ekki laust við,