Andvari - 01.01.1954, Qupperneq 72
68
Bjöm Þórðarson
ANDVARJ
ijárlaganefndin upp úr um það, að henni hafi verið hartnær
ómögulegt að kornast niður í, hvort ein og önnur útgjöld í fjár-
hagsáætluninni fyrir ísland væru nauðsynleg, og væri yfirhöfuð
æskilegt, ef Alþingi gæti fengið vald til að kveða á um tekjur
og gjöld fslands, og það jafnvel þó þurfa kynni að skjóta til
ákveðinni fjárhæð árlega um tiltekið árabil. En hér í mót ætti
líklega einnig að leggja á ísland að taka nokkuð meiri hlutdeild
í almennum álögum, svo sem t. d. að leggja til menn á herflot'
ann (Ný Félagsrit 16. árg. bls. 185—86). Dómsmálaráðgjafinn,
sem fór með mál íslands, lofaði, að þessari uppástungu nefnd-
arinnar skyldi verða gaumur gefinn og hún lögð fyrir Alþingi,
í þá stefnu sem nefndin benti til. Alþingi kom ekki saman fyrr
en næsta ár, og notaði stjómin tímann til þess að bera málið
undir amtmennina á íslandi með bréfi 28. apríl 1856. Var þeim
skýrt frá tillögu fjárlaganefndarinnar og lagt fyrir þá að gera
sem ýtarlegast grein fyrir skoðun sinni um útboð til herflotans
og hvernig því mætti á sem heppilegastan hátt verða komið fyrir
og hrundið í framkvæmd.
Trampe stiftamtmaður, sem var amtmaður í suðuramtinu,
taldi heppilegast fyrir sig, áður en hann léti stjóminni í té álit
sitt, að leita til nokkurra innfæddra landsmanna, sem mundn
hafa nægilega þekkingu á málinu og fara nærri um, hvernig
menn almennt hér í landinu mundu bregðast við þessu nýmæl’,
en stiftamtmaður kvað sér þó vera kunnugt um, að landsmenn
væm mjög tregir til að fallast á nokkra nýja ráðstölun. Hinn 4-
júní 1856 valdi stiftamtmaður þá dómstjóra Þórð Jónasson, land'
fógeta Vilhjálm Finsen, Jón Guðmundsson alþingismann og ]oíl
landlækni Hjaltalín til þess að ganga saman í nefnd til athug'
unar hermanna-útboðs af Islandi til skipaflota Dana. Var lagc
fyrir nefndina að láta í ljós greinargerð um, „hvort útboð þetta
verði framkvæmt, og einkanlega um aldur útboðsmanna, tölu
þeirra og herþjónustutíma; hvernig ætti að koma útboðsmönU'
unum til Danmerkur, hverjir og hvemig ætti að fyrirtaka 11 ý
boðið, sem og um það, hvað hér við væri nákvæmar athuganda