Andvari - 01.01.1954, Page 74
7.0
Björn Þórðarson
ANDVARI
þá, er leysa skyldi úr herþjónustunni, því að lausnin ætti að
fara fram hér á landi, ella væri hætta á, að margir þeirra mundu
heldur vilja vera erlcndis og landið fara á mis við vinnuafl
þeirra framvegis.
Jón Hjaltalín gat ekki átt samleið með hinum nefndarmönn-
unum og sendi amtinu sínar eigin skoðanir á útboðsmálinu, sem
hér skulu greindar að nokkru. Hann taldi hermannsstöðuna ágæt-
lega fallna til að mennta yngri menn og innræta þeim hlýðni
og reglusemi, sem ekki veitti af í þessu landi óhlýðni og óreglu.
Undanþága íslands frá herútboði hingað til hafi verið landinu
meira til tjóns en gagns, og hún væri að nokkru leyti orsök þess,
að bændur og fiskimenn hefðu sáralitla hugmynd um að skipa
fyrir og hlýða. Fiskimennirnir væru mjög fákunnandi í sjó-
mennsku og þangað ætti rætur að rekja hin óhemjulega tala
drukknaðra manna, sem hvergi ætti sinn líka í öðrum löndum,
en á tímabilinu 1835—1844 hefðu drukknað hér 530 manna.
Sjómennsku gætu íslendingar ekki lært á hinum slæmu og ónýtu
fiskibátum. Utboð íslendinga á danska flotann væri því mjög
æskilegt og það væri bezt fallið til að koma inn hjá ungunr
mönnum á íslandi hugmynd um sjóferðir. En um sjávarafla ís-
lendinga væri þannig háttað, að 100 þeirra bera ekki meira
frá borði í sömu fiskileitum hér við landið en 10 franskir fiski-
menn. Og vafasamt er, sagði Jón Hjaltalín, hvort hluttaka bónd-
ans í fiskiaflanum er ekki fremur til tjóns en gagns fyrir landið-
Merkasta mótbáran gegn hinu fyrirhugaða útboði er óneitanlega
sú, að ísland skortir svo mjög vinnukraft, að það má ekki við
að missa svo marga menn árlega, en eftir minni meiningu skortir
landið ekki svo mjög vinnuafl sem skipulag og ráðdeild til notk-
unar þeirra vinnukrafta sem til væru, og reynzla hans væri su,
að 2 íslenzkir erfiðismenn orkuðu ekki meira upp og ofan en
einn danskur. íslendingar þurfa að komast út í heiminn og heirn-
sækja önnur lönd og mundu hafa gott af að sjá, hve langt þeú'
stæði að baki annarra þjóða, og þar á meðal hve herfilegt ástand
iðnaðarins er hér. Fleira skal ekki rakið úr þessu álitsskjali land'