Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 15

Andvari - 01.01.1953, Page 15
andvari Gunnlaugur Claessen 11 Má og óhætt segja, að hann teldi sér fátt óviðkomandi, er varð- aði heilbrigðismál landsins. Auk hlutdeildar hans í stofnun Læknablaðsins og Læknafélags íslands og alþýðufræðslu hans um ýmis heilbrigðismál, er allt verður minnzt á síðar, má nefna þátt hans í baráttunni við berklaveiki og krabbamein, en sérstak- lega voru það þrjú mál, er hann beitti sér fyrir, auk útiýmingar geitnanna, sem þegar hefur verið sagt frá. Þau voru sullaveiki- varnir, stofnun og þróun Rauða kross Islands og Hkhrennsla og stofnun hálstofu í Reykjavík. Skal nú nokkuð sagt frá hverju þessara mála um sig og starfi dr. Gunnlaugs að lausn þeirra. Sullaveikivarnir hófust eðlilega ekki fyrr hér á landi en kunn- ugt var orðið um orsök sullaveikinnar, og voru þær aðeins í því fólgnar fyrsta sprettinn, að lagður var skattur á eign óþarfra hunda. í lögum frá 1890 var bætt við lágum skatti, er greiða skyldi af nauðsynlegum hundum, skipað svo fyrir, að grafa skyldi sullmengað slátur djúpt í jörð eða brenna það, og loks heimilað sýslunefndum og bæjarstjórnum að láta fara fram lækn- ingu hunda af bandormum. Var sú heimild víða notuð, en af ýmsurn ástæðum má ætla, að gagnið af þessum ákvæðum hafi oftast verið mjög vafasamt, enda víðast ekkert eftirlit með því, hvernig þeim var framfylgt. Engu að síður var sullaveikin nokk- 11 ð tekin að þverra um aldamótin 1900, en það mun fyrst og fremst hafa verið því að þakka, að það kornst smárn saman inn í vitund fleiri og fleiri manna, meðal annars fyrir fræðslu lækna 1 ræðu og riti, einkanlega dr. Jónassens, hver háski stafaði af hund- ununr í þessu efni, og varúð í umgengni við þá tók þess vegna að verða almennari. Vitanlega vantaði samt rnikið á, að hún væri fullnægjandi til að varna því, að fleiri eða færri smituðust árlega. Gunnlaugi Claessen var það ljóst að tvö atriði vörðuðu mestu til fækkunar sýkinga; annars vegar stöðug fræðsla um sýkingarhættuna af hundurn og brýningar um varúð gegn henni, lúns vegar fækkun huirdanna. Hið fyrra var hlutverk lækn- anna. Hinu síðara mátti koma til leiðar með því að banna óþarft

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.