Andvari - 01.01.1953, Side 22
18
Sigurjón Jónsson
ANDVARI
urðu, þeim mun meir fannst mér til um prúðmennsku hans og
hispurslaust viðmót, óbeit hans á allri sýndarmennsku, öfgum
og tildri og hve umhugað honum var um heill og sóma lækna-
stéttarinnar og framfarir í heilbrigðismálum þjóðarinnar.
Því að, svo sem ljóst má vera af því, sem hér á undan er
ritað, var hann þar ekki við þá eina fjölina felldur, er laut að
sérgrein hans, og var þó starf hans þar svo mikið og gott sem
áður hefur verið rakið. Hann var einn þeirra lækna, er áttu
frumkvæðiö að stofnun Læknablaðsins, þótt Guðmundur Hannes-
son og M. Júl. Magnús væru þar fremstir í flokki. Var hann
ritstjóri þess 1923—1930 og skrifaði í það fjölda ritgerða og styttri
greina fyrstu áratugina. Meðal annars varð hann fyrstur til að
rita um Landsspítalamálið í Læknablaðið (II. árg., bls. 26—32).
Landsspítalinn var þá aðeins frómur framtíðardraumur, en þó
í þann veginn að komast nýr skriður á eftir hálfs annars ára-
tugs aðgerðaleysi, er konur í Reykjavík tóku að gangast fyrir
fjársöfnun til að koma landsspítala á fót. Á fyrsta aðalfundi
Læknafélags íslands 1919 var Gunnlaugur kosinn í nefnd í
Landsspítalamálið ásamt tveim öðrum ágæturn læknurn; lagði
nefndin fram álit, og var í því orðuð áskorun frá Læknafélaginu
til Alþingis um fjárveitingu til undirbúnings og áætlana um kostn-
að, stað og fyrirkomulag landsspítala, er ekki hefði færri en 100
rúm fyrir sjúklinga. Undir þetta ritaði Gunnlaugur með þeim
fyrirvara, að hann teldi 100 rúm of fá, væri réttara að nefna
200, ef rúmatala væri nefnd á annað borð. Sýnir þetta framsýni
hans í þessu máli sem fleirum.
Flestar ritgerðir Gunnlaugs í Læknablaðinu eru eðlilega um
sérgrein hans: notkun röntgengeisla og radiums til lækninga og
greiningar sjúkdóma, og um ljóslækningar og tæki til þeirra, en
eigi voru þau önnur mál fá, er hann lét þar til sín taka. Má
auk ritgerða hans um geitnarannsóknir og geitnalækningar, sem
áður hefur verið getið, nefna ritgerðir um byrjunarstig berkla-
veiki, um sjúkrahjúkrun til sveita og um meðferð barna fyrir og
eftir óperation. Þar ritaði hann og um vitamin, efni, sem einnig