Andvari - 01.01.1953, Blaðsíða 30
26
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
Magnús Stephensen, sem var á sinni tíð hinn fróðasti rnaður
um sögu 18. aldar á Islandi, segir í hinu ágæta rili sínu, Eftir-
mæli 18. aldar, og ber þar fyrir sig ummæli Jóns Eiríkssonar í
riti hans um framfarir íslands, Deo, regi, patriæ, að um 1700
hafi tekjur af fasteign á íslandi numið rúmlega 33 þús. rd.,
en árið 1759 rúmlega 24 þús. rd., og með sama verðlagi og 1759
myndi þessi upphæð ekki hafa numið 20 þús. rd. um 1800.
Þessar tölur em vafalaust ekki nákvæmar, en hlutfallslegt gildi
þeirra myndi fara nærri réttu lagi, og því vel þess vert að gefa
þeim gaum. Hér er um stórkostlegt hrun að ræða, eða um 40%
á einni öld. En sízt þarf að undra, þótt landverði hrakaði hér á
18. öld, er mannfjöldinn komst þrisvar sinnum niður fyrir 40
þúsund, svo eigi sé talin langvinn hallæri af völdum ills árferðis,
fjárpesta og náttúmumbrota, einkum á síðara helmingi aldarinn-
ar. Á þessum tíma má kalla, að gangi til þurrðar síðustu leifar
fornrar auðlegðar, er haldizt höfðu í nokkmm ættum í landinu
fram um 1700. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði varðaði slíkt minnstu.
Hitt var verra, að þeir fátæku urðu líka enn snauðari. Þannig
skilar einokunaröld þjóðinni af sér fjárhagslega máttvana og
umkomulausri.
Þegar Skúli Magnússon hóf baráttu sína fyrir viðreisn íslands
með stofnun innréttinganna, var honum Ijóst, að eigi nrætti við
rétta hag landsmanna fyrr en verzlunin yrði frjáls og kæmist
jafnframt í hendur íslenzkum mönnum, svo að verzlunarhagnað-
urinn staðnæmdist í landinu og gæti orðið bakhjarl framsóknar
og umbóta í atvinnuefnum þjóðarinnar, jafnframt því sem al-
þýða manna sætti betri viðskiptakjörum og hæri rneira úr býtum
en áður fyrir störf sín á sjó og landi. Þetta var kjarni málsins.
Bætt verzlunarkjör, samfara aukinni og bættri framleiðslu bæði
til lands og sjávar, var markmiðið, sem keppa har að af öllum
kröftum. Ilvatningar og leiðbeiningar um búnaðarbætur hvers
konar og smástyrkveitingar og verðlaun því samfara var allt
saman gott og blessað, en svo sem árangurslaust, nema fram ur
raknaði um verzlunarkjörin.