Andvari - 01.01.1953, Page 41
ANDVARI
37
Á mótum gamals tíma og nýs
665 menn, er framfærslu hafi af sjósókn. I norður- og austuramt-
inu eru 190 menn taldir lifa af sjávarútvegi, flestir í Eyjafjarðar-
sýslu, eða 141. Tölur þessar gefa ljósa bendingu um það, hversu
veigamikill þáttur sjósóknin var í atvinnulífi manna í ýmsum
landshlutum. Svipað verður uppi á teningnum, ef athugaðar eru
skýrslur um útflutning helztu sjávarafurða. Árið 1849 eru út
flutt úr suðuramtinu alls 16550 skpd.; úr vesturamtinu alls 3054
skpd.; úr norður og austuramtinu koma 28 skpd. af saltfiski og
12 skpd. af harðfiski, alls 40 skpd. í suðuramtinu var mestallt
fiskmagnið komið frá Reykjavík og úr Gullbringu- og Kjósar-
sýslu; Ámessýsla er með rúm 200 skpd. í vesturamtinu kemur
langnrestur fiskur úr ísafjarðarsýslu og svo Barðastrandarsýslu.
Ekkert úr Strandasýslu. í norður- og austuramtinu kom allur
harðfiskurinn úr Eyjafjarðarsýslu, og mestallur saltfiskurinn, 21
skpd., úr Norður-Múlasýslu. Má því kalla, að svo sem ekkert
sé til þessa útflutnings lagt frá Geirólfsgnúpi austur um land
að Þjórsárósum. Hitt verður ekki auðveldlega metið, hvem þátt
vermenn af þessu svæði áttu í afla þeim, sem fluttur var út af
Suður- og Vesturlandi, né heldur hversu mikla björg þeir drógu
í bú heima fyrir. Sé litið til lýsisframleiðslunnar, breytist þessi
ntynd nokkuð. Af lýsi koma til útflutnings einar 706 tn. úr suður-
amtinu, þar sem fiskaflinn er þó langsamlega mestur. Llr vestur-
amtinu koma 1296 tn., þar af úr Strandasýslu, þar sem enginn
var fiskútflutningurinn, 177 tn. Og úr norður- og austuramtinu
komu 1258 tn. af lýsi, þar af aðeins 52 tn. úr Norður-Múlasýslu,
er þó flutti mest út af fiski, en 412 tn. úr Þingeyjarsýslu, sem
engan fisk hafði út að flytja. Þetta em kynlegar tölur, en þó má
eitthvað af þeim læra. Þótt gera megi ráð fyrir, að allmikið af
þorskalýsinu hafi verið notað til viðbitis og ljósmetis innanlands,
er glöggt, að nýting þorsklifrar til lýsisvinnslu hefir enn um
þessar mundir staðið á mjög lágu stigi. Mestur hluti þess lýsis, sem
út var flutt, hefir verið hákarlalýsi og sellýsi. Skýrslan um lýsis-
útflutninginn er því villandi, sé þessara staðreynda ekki gætt.
Til samanburðar skulu hér til færðar nokkrar tölur um fisk-