Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 49

Andvari - 01.01.1953, Page 49
ANDVARI 45 Á mótum gamals tíma og nýs búskaparlagi fram um aldamótin 1800. Á árunum 1823 til 1849 er nautgripatalan um 25 þús., en fjártalan vex úr urn 400 þús. 1823 í um 600 þús. 1843—49. Árið 1804 er tala nautgripa um 20 þús. og sauðfjártalan um 219 þús. og hækkar því allvel fram um 1820, einkum sauðfjártalan, en eigi er unnt að sjá, hvernig hækkun sú verður. Líklega kemur hún nrest á síðara liluta tíma- bilsins. Skýrslur sýna, að fjárstofninn óx um 240% á árunum 1804—1853, og má mikið kalla. Sé litið eftir því, hversu margar kindur koma á mann þessi ár, þá kemur í ljós, að 1804 koma 5,8 kindur á mann, en 11,6 árið 1853. Þrátt fyrir mikla mann- fjölgun vex því sauðfjárstofninn svo á þessu tímabili, að á hvern mann kemur helmingi fleira fé 1853 en 1804. Þessar tölur tala skýru máli um vaxandi hagsæld landbúnaðarins á fyrra hluta aldarinnar. í samræmi við það sýna skýrslurnar hlutfallslega hæst- ar búpeningstölur í þeim héruðum, sem minnsta stoð áttu í sjávar- afla. Hrossum fer og fjölgandi, úr 26524 árið 1804 í 37557 árið 1849. Þegar til þess er litið, að lifnaðarhættir voru enn um miðja 19. öld ekki stórum breyttir til aukins kostnaðar frá því, sem fyrrum tíðkaðist, má ljóst vera, að mikil breyting er hér á orðin til batnaðar á högum landsmanna. Búin gefa miklu meira af sér, nrenn hafa rýmri hendur og vegnar betur yfirleitt. Fram- leiðslan hefir aukizt svo að magni og verðmæti 1849, að útflutt vara nemur hart nær helmingi meiri upphæð en innflutt vara, °g fór þó innflutningurinn vaxandi, svo sem ráða má af yfir- fiti um lestarrúm skipa, sem hingað sigldu frá upphafi fríhöndl- unarinnar. Á árunum 1787—1790 sigldu hingað að meðaltali 54 ship, 2127 rúmlestir samtals, en á árunum 1840—49 101 skip, samtals 3671 rúmlest. Hér hafa ýmis dæmi verið saman dregin, er vitna um batn- andi hag þjóðarinnar á fyrra hluta 19. aldar, einkum á tíma- hilinu 1820—1850. Hér má enn við bæta yfirliti um sveitaþyngsli á þessum tíma. Árið 1703 voru 15,5% af öllum landslýðum þurfa- hngar og förumenn, það er að segja fólk, sem ekki vann sjálft Árir sér, var sjúkt, vanburða sökum bernsku eða elli, eða fékk

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.