Andvari - 01.01.1953, Blaðsíða 54
ANDVARI
Milli Beruvíkurhrauns
og Ennis.
Eftir Magnús Má Lárusson.
Svo segir í Landnámu, að Váli hinn sterki hafi heitið hirð-
maður Haralds konungs hins hárfagra. Hann vó víg í véum
og varð útlægur. Hann fór til Suðureyja og staðfestist þar, en
synir hans þrír fóru til fslands. Hét einn Atli, annar Alfarinn,
þriðji Auðunn stoti.
Atli Válason og Asmundur, sonur hans, námu land frá Furu
til Lýsu í Staðarsveit.1) Auðunn stoti nam Hraunsfjörð allan
fyrir ofan Berserkjahraun, á milli Selvallavatns og Tröllaháls.2)
Alfarinn nam Snæfellsnes milli Beruvíkurhrauns og Ennis. Eigi
getur Landnáma þess, hvar Alfarinn hafi tekið sér bólstað, og
sennilega hefur hann heitið öðru nafni, en Alfarinn verið viður-
nefni hans. Hins vegar er skylt að geta þess, að orðið Alfarinn
kernur fyrir sem mannsnafn, þótt ákaflega sjaldgæft sé, og ætti
Alfarinn Válason að vera eini maðurinn sannsögulegi, sem borið
hefur það nafn. f nafnaþulunum í Skáldskaparmálum kemur
orðið fyrir sem nafn á jötni.3) í Ynglingasögu er sagt frá því,
að móðurfaðir Olafs konungs Geirstaðaálfs hafi heitið Alfarinn
og verið konungur í Alfheimum, er þá voru kallaðir milli Raum-
elfar og Gautelfar.4) Ennfremur virðist sá Alfarinn hafa tekið
þátt í Brávallabardaga með Hringi konungi, en hér er þó senni-
lega ekki um neina sannsögulega persónu að ræða.5) Alfarinn
virðist geta verið myndað eins og Þórarinn (Þór-arinn), og ætti
líklega að rita nafnið Álfarinn (Álf-arinn). Synir Álfarins voru
þeir Höskuldur, er bjó að I löskuldsám, og Ingjaldur, er bjó a