Andvari - 01.01.1953, Síða 78
74
Böðvar Jónsson
ANÐVARI
lifi. Af þessari veru minni fyrir norðan og viðkynningu við
fólk í Norðurlandi hefi ég aldrei síðar getið fellt mig vel við
fólk hér syðra. í hverju það liggur, vil ég fátt um segja, en
svona er það, og er ég þó ættaður úr Borgarfirði og uppalinn
þar. Sama er að segja um veðurfar og loftslag, það er líka að
mér finnst mjög ólíkt fyrir norðan, og munu fleiri hafa fundið
það en ég. Til dæmis er veðurfar hreinna, oft harðara með
köflum, en svo aftur blíðara, já, himneskt, alveg dýrlegt. —
Nú er komið hrímkalt haust, kaupafólkið komið heim úr
sumarvinnu, hvar í sveitum sem dvalizt hefir, allir á sinn stað,
og nú hugsum við til róðra Mikjálsmessudag, 29. september.
Þann dag hafði bóndi og húsfreyja mikið að gera, einkum ef
vinnufólk var rnargt. Nú var farið að vigta út vetrarforða fólks-
ins, srnjör og tólg til viðbits, allan tímann til 11. maí. Var
kölluð lögútvigt handa karlmanni 8 fjórðungar eða 80 pd. smjörs.
Konur fengu hállu minna, 40 pd. smjör. Þessu mátti breyta
nokkuð vítalaust af hálfu húsbænda og hjúa. Ætti bóndi til
dæmis ekki nóg smjör en hins vegar nóga tólg, þá mátti vega
út 50 pd. af smjöri og 30 pd. af tólg. Oftar var útvigtin samt
60 pd. smjör og 20 pd. tólg hjá körlum, hálfu minna hjá kon-
um. Öll hjú fengu eftir vild og þörfum nýbrætt þorskalýsi til
þess að gera sér bræðing. Var þá vanalega tekin ný lifur, ef vel
fiskaðist einhvern dag, og brætt það feitasta og bezta af lifrinni
og lýsið liaft til matar. Slíkt feitmeti var algengt og mun hafa
verið hollt, eða það er mín trú. Og ekki vissi ég neinn hafa
nokkuð á móti þessari feiti, ef lýsið var vel brætt og geymt
eftir þeim reglum, sem þá þekktust beztar. Hér gátu komið til
greina aðrar tegundir lýsis, til dæmis hákarlalýsi, sem þótti ágætt.
Sumir notuðu skötulýsi, ef ekki var annað nær hendi, en það
var ekki nærri eins vinsælt, og ekki heldur sellýsi, þó allt væn
þetta notað, ef með þurfti. Eg er einn þeirra, sem trúa því fast-
lega, að við íslendingar lifum of lítið á okkar góða þorskalýsi,
og svo síld. Sé þetta markleysa, þá fer það með mér, en sjálfur