Andvari - 01.01.1953, Síða 81
ANDVARI
Þættir um kjör verkafólks á síðara hluta 19. aldar
77
Mest var spilað vist og púkk. Eldra fólkið hélt líka upp á alkort.
Eigi voru spiluð peningaspil, en oft var kátt við spilin og bændur
gáfu þá stundum púns og konurnar kaffi. Á jólum var stundum
vakað heilar nætur við spil og á gamlárskvöld allt fram undir
morgun á nýársdag. Líka var sjálfsagt að spila út jólin, ef unnt
var, en við bar, að menn væri þann dag á sjó. Elöfðu þá sumir
skipti á þrettándanum og næsta sunnudegi eða landlegudegi.
Eftir hátíðirnar tók svo við óslitið áframhald við vinnu. Karl-
menn reru, hvenær sem á sjó gaf, og í landi var ætíð nóg að
gera, eins og ég hefi áður drepið á. Ef verkefni þraut inni við
veiðarfæragerð eða annað slíkt, vorum við vinnumennirnir látnir
taka upp grjót úr túni eða holti og hlaða úr því garða um tún
eða matjurtagarða, svo og að vinna að lægfæringu á matjurta-
görðum fyrir vorið. Oll varð sú vinna að notum, þó oft væri
hún ekki mikil hverju sinni.
Eg hefi nú lýst nokkuð vinnubrögðum karlmanna í sjópláss-
um hér á Suðurlandi, en talað minna um vinnu kvenna, og er
þó margt um hana að segja, því ekki lágu þær á liði sínu,
fremur en karlmennirnir. Snemma fóru þær á fætur, sú fyrsta
til að hita kaffi handa þeim, sem reru, en svo tók við óslitin
vinna hjá vinnukonunum, hvort sem þær voru margar eða
fáar á heimilunum, en þær voru venjulega því fleiri sem heimilin
voru stærri. Sú stúlka, sem var við eldhússtörfin, fór vanalega
að hnoða og gera brauð til dagsins, oftast flatkökur, strax og
búið var að drekka morgunkaffið, en því næst að sjóða morgun-
niatinn, graut eða fisk eftir atvikum. Fyrir kom, að sú sama
stúlka gaf kúnni, eða kúnum, ef fleiri voru. Þá var það til, ef
á heimilinu var gamalmenni, karl eða kona, að það væri látið
vera í fjósi, sækja vatn og mala út á grautinn, o. s. frv. Oft var
þetta gamla fólk mjög gagnlegt heimilinu, ef það var hjá bæri-
legum húsbændum og sæmilega að því búið, en slíkt fór nú eftir
ntvikum. Annað kvenfólk á heimilinu tók þegar að morgni til
við ullarvinnu. Flestir reyndu að vinna eitthvað til vefjar; svo
var spunnið band og mikið prjónað, svo sem sokkar, nærföt og