Andvari - 01.01.1953, Side 90
ANDVARI
Æðarvarpsrækt.
Eftir Olaf Sigurðsson.
Á undanförnum öldum hafa ýmsir ágætir menn ritað um
æðarvarpsræktina: Fyrstur Eggert Ólafsson í ferðabók sinni. I 4.
bindi rita Lærdómslistafélagsins er ritgerð um æðarvarp, eftir Ólaf
stiftamtmann Stepbensen, þá á Innrahólmi. Þá skrifar Eyjólfur
Guðmundsson á Eyjabakka á Vatnsnesi, „Varp-Eyjólfur“, mjög
merkilega ritgerð urn æðarvarpsræktina í 4. árgang Andvara. Er
þar að finna beztu leiðbeiningar um hirðingu og ræktun æðar-
varpa, sem enn hafa verið ritaðar. Guðmundur Davíðsson á
Hraunum ritar 1915 „Nokkur orð um æðarvörp" í 29. árgang
BúnaÖarritsins. Eru í grein þessari rnargar ágætar athuganir, sem
von var frá þeim athugula og stórgreinda manni. Síra Sigurður
Stefánsson alþm. í Vigur ritar í 31. árgang Búnaðarritsins um
æðarvörp á íslandi að fornu og nýju. Er það mesta og fróðleg-
asta ritgerð, sem rituð hefur verið um æðarfugl og æðarvörp.
Þá hefur dr. Finnur Guðmundsson greint ýtarlega frá rann-
sóknum þeirn, sem hann gerði á lífsháttum æÖarfuglsins, á veg-
um Atvinnudeildar Háskólans, vorið 1940. Er það fylgirit með
frumvarpi til laga um friðun æðarfugls og frumv. til laga um
eyðingu svartbaks.
Auk þess hafa verið ritaðar nokkrar smágreinar í hlöð og
tímarit um æðarfugl, dúnhreinsun og dúnmat.
Öllum þessum mönnum, sem um æðarvörpin liafa ritað,
kemur saman um eftirgreind atriði og styðjast við langa reynslu
sína og margra annarra, sem þeir vitna til: