Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 92

Andvari - 01.01.1953, Page 92
88 Ólafur Sigurðsson ANDVAHl hey í hreiðrin. Sést greinilega, hversu æðarkollan metur þetta vel og réttilega, því oft taka þær, sem fyrst verpa, heyið úr næstu hreiðrum í kring og hlaða undir sjálfa sig. Nokkra þýðingu hafa smá flögg eða alla vega litar tuskur, er bundnar eru á snæri, sem strengt er í 154 meters hæð yfir varpið, sömuleiðis rellur og klukkur. En heildarþýðing þessa umbúnaðar er sú, að þetta er gert á beztu varpstöðunum, þar verður svo varpið þéttast, en það er einmitt það, sem á svo vel við hinn félagslynda fugl. Þá veitir allur þessi umbúnaður meiri frið og öryggi gegn vargfugli, og varpmaðurinn, vinur hans, gengur þar oftar um og reglu- bundnar en annars staðar um vaqrlandið. Ég hefi þekkt og talað við gamla og vana varpbændur, sem höfðu það fyrir sið að steypa undan þeirn kollum, sem orpið höfðu allfjarri þeim stað, er þeir vildu hafa og var aðalvarpið, ef ekki voru komin nerna eitt eða tvö egg og enginn dúnn í hreiðrið. Þeir héldu því fram, að með þessu móti gætu þeir vanið fuglinn á að verpa í aðalvarpinu. Þessi stefna, að vinna hægt og með skynsemd að því að þolca fuglinum saman á beztu og hagkvæmustu staðina í varplandinu, er áreiðanlega þess verð að vera athuguð og reynd. Það hefur mjög mikla hagræna þýð- ingu um alla hirðingu og vörzlu æðarvarsins að liafa það sem þéttast, á fáurn stöðum, og mun efalaust hafa áhrif á þróun þess. Það liggur í hlutarins eðli, að eggjataka er mjög varhugaverð og hefir löngum verið byggð á þeirn forsendum, að erfitt mundi vera fyrir „kolluna" að annast marga unga og að meira yrði um fúlegg, ef henni væri ætluð mörg egg til ásetu. Báðar þessar ástæður eru að mestu leyti út í bláinn. Æðurin getur mjög vel ungað út 7—8 eggjum og umönnun unganna er einungis sú að hlýja þeim fyrstu vikuna. Enda sér maður mjög oft um útleiðslutímann, að ein æður er komin með milli 10 og 20 unga, en aftur aðrar með einn eða tvo, eða ungalausar, sem fyrir hálfri stundu voru með sína 3 eða 4 unga, og svartbakur ekki verið við þá stundina til að éta þá. Hér liggur allt annað til grundvallar en hjá spendýrum, þar sem móðirin þekkir jafnaðar-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.