Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 94

Andvari - 01.01.1953, Page 94
90 Ólafur Sigurðsson ANDVAHI vel hirtur, þurrkaður fljótt og hristur vel og geymdur laus, þar til hann er hreinsaður á hjall- og skemmulofti, má búast við að fá 1 kg. úr um 50 hreiðrum. En sé hirðingu mjög ábótavant, geta farið 65—70 hreiður í ldlógrammið. Óvinir æðarfuglsins. Eins og áður er að vikið, er svartbakurinn skæðasti spellvirki æðarvarpanna, vegna þess að hann étur egg og unga æðarfuglsins í stórum stíl. í því sambandi vil ég geta um nokkur atriði úr athugunum dr. Finns Guðmundssonar, er hann gerði á varpinu á Bæ í Hrútafirði vorið 1940. Þar segir svo: „Svartbakurinn er vafalaust sá óvinur æðarfuglsins úr dýra- ríkinu, sem mest tjón stafar af. Vanhöld þau, sem hann veldur á eggjum og ungurn æðarfuglsins, eru geysilega mikil og sjálf- sagt meiri en flesta grunar. . . . Við athuganir mínar á lífsháttum æðarfuglsins í varpinu á Bæ í Hrútafirði hafði ég gott tækifæri til að fylgjast með eggja- og ungatöku svartbaksins, einkum eggja- tökunni . . . Til marks um það, hversu mikil brögð eru að eggjaráni svart- baksins, skal hér skýrt frá niðurstöðu af athugunum á 4 hreiðrum, sem ég merkti í byrjun varptímans og gaf eftir það nánar gætur, þar til kollurnar voru búnar að leiða út. Af þessum 45 hreiðrum urðu 25 eða 56% fyrir ásóknum svartbaksins. Af 233 eggjum, sem orpið var í þessi 45 hreiður, rændi svartbakurinn 73, eða 31% af eggjunum. Það skal tekið fram, að aðsókn svartbaks í varpið, þar sem athuganir þess voru gerðar, var ekki mjög mikil í samanburði við það, sem víða er annars staðar. Það er ekki úr vegi að athuga, hve mikið af æðareggjum fer í svartbakinn að meðaltali á ári hér á landi, samkvæmt niður- stöðum þeim, sem ég hefi komizt að. Ef gert er ráð fyrir, að hver kolla gefi af sér 17 gr. af hreins- uðum dún á hverju ári, en það mun láta mjög nærri sanni, þá ættu að vera 223 875 æðarhreiður á öllu landinu, því meðal dúnmagn af hreinsuðum dún hefur verið 3582 kg. á ári á tíma- bilinu frá 1898 til 1938. Ef við gerum ráð fyrir 4 eggjum í hreiðri að meðaltali, en það mun tízt of hátt reiknað, þá ætti

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.