Andvari - 01.01.1941, Side 8
4
Þorsteinn Þorsteinsson
ANDVARI
—■ Fiskiskipin — róðrarbátarnir — voru litlu eða engu betri
á öndverðri 19. öld en bátar þeir, sem fyrst var róið á til fiskjar
á landnámsöld. Voru engu meiri framfarir sjávarútvegsins
en landbúnaðarins. Mátti heita algerð kyrrstaða í þessum
meginatvinnuvegum íslendinga fyrstu þúsund árin, því að
munaði „nokkuð á leið“ í einstökum atriðum, munaði aftur
á balc í öðrum. T. d. áttum vér þá sjálfir færri haffær skip
en á söguöldinni.
Þótt vér ættum ýmsa ágæta menn, sem uppi voru á því
tímabili, sem hugsuðu um landsins gagn og nauðsynjar, þá
fór það oftast svo, að áhrifa þeirra gætti ekki nema um skeið
og framkvæmdir þeirra liðu undir lok að þeim liðnum. Átjánda
öldin var hér á landi öld tilrauna um endurbætur á atvinnu-
vegunum. Vafasamt er, hvort nokkur önnur öld hefur fært oss
fleiri ágæta áhugamenn í atvinnumálum vorum, bæði í ritum
og framkvæmdum. Það er enginn vafi á, að hefði árferði
verið gott síðari hluta hennar, hefðu íslendingar staðið miklu
framar og hetur að vígi um framleiðslu alla í byrjun 19.
aldar en raun var á, því að allar tilraunir um endurbætur
hættu um skeið og framkvæmdir áhugamannanna eyddust á
síðari árum 18. aldar. Voru og fyrstu ár 19. aldarinnar ein
hin erfiðustu, sem komið hafa yfir landið.
Um 1870 hófust varanlegar endurbætur á landbúnaði og
sjávarútvegi. Hinir nýju landnámsmenn komu þá fram. Torfi
i Ólafsdal kom með skozku ljáina, sem í þann tíð voru
nokkurs konar sláttuvélar, miðað við afköst þeirra, er notuðu
íslenzku Ijáina. Túnsléttur eru þá framkvæmdar svo að ufl'
munar í ýmsum sveitum, og búnaðarfélög stofnuð allvíða.
Búfræðingar, sem lært höfðu jarðrækt utanlands, leiðbeina
þá fyrst bændum allverulega við jarðyrkjustörf. Á áttunda
tug aldarinnar er stofnaður fyr'ti búnaðarskóli landsins,
Ólafsdalsskólinn, en brátt lcoma þar á eftir skólarnir að
Hvanneyri, Hólum og Eiðum. Var þá búfræðikennsla mikil í
landi, en árferði var hér þá afar erfitt fram yfir níunda tug
aldarinnar, og varð því minna úr búnaðarframkvæmdum en
annars hefði orðið. Þegar kom fram um aldamót og tíðarfar