Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 10

Andvari - 01.01.1941, Page 10
6 Þorsteinn Þorsteinsson ANDVARI skip við strendur landsins og milli landa. Getum vér nú sjálfir flutt að oss á eigin skipum nauðsynjar vorar og frá oss af- urðir landsins að mestu á venjulegum tímum. Ýmsar verk- smiðjur hafa verið reistar til þess að vinna úr afurðum sjáv- arins og einnig landbúnaðarins. Vélaiðnaður allur hefur orðið til á þessu tímabili. Allri verzlun höfum vér náð í vorar hend- ur. Síðast en ekki sízt höfum vér endurheimt sjálfstæði vort. Það leikur aldrei á tveim tungum, að miklu grettistaki hef- ur verið lyft á þessu síðara landnámstímabili. Efnahagur þjóð- arinnar hefur færzt úr vesaldómi í sæmilegt horf, og andlegu fargi hefur verið lyft af þjóðinni um leið og stjórnarfars- maran var hrakin frá. Það má með sanni segja, að landið (hið byggða land) sé orðið annað, hafið annað, og þjóðin önnur. „Auðurinn er afl þeirra hluta, sem gera skal.“ Það var ekki ófyrirsynju, að forn skáld vor kenndu gull mjög til Ægis og Ránar. Þangað hafa meginefni þjóðar vorrar verið sótt, og auður sá, sem sóttur hefur verið í greipar Ægis, hefur beint og óbeint verið notaður að eltki litlu leyti til þess að endur- skapa landið; þar á ég við hvort tveggja, ræktun og samgöngu- hætur. Enn fremur hinar stórkostlegu húsabætur, gerðar á síðari árum. Nú eru margir þeirra manna, er stóðu í fylkingarbrjósti þegar gerð var hin fyrsta og harðasta hríð gegn þeim örðugleikum, sem stóðu nýja landnáminu í vegi, lagztir til hvildar, eftir erfitt en vel unnið dagsverk. Þeir voru brautryðjendur þjóðarinnar til hinna betri tima. „Því er þessa mætra að minnast.“ Her skal engum slcugga varpað á vökumenn þjóðarinnar, sem upp1 voru fyrir þann tíma. Þeir höfðu undirbúið jarðveginn fyrii' þá, sem á eftir komu. Hin mikla véltækni erlendis barst hin- um nýju landnemum vorum í hendur. Þeir færðu sér hana i nyt með hagsýni, eftir því sem hér átti bezt við, hvort heldur var til lands eða sjávar. Mörgum þeirra, er forustu höfðu um landbúnaðarmálin og framkvæmd þeirra á hinni nýju land- námsöld, hafa verið gerð góð skil á prenti og þeim verðug- Hafa menn gert sér tíðara um þá en hina, er sjávarútveg stund- uðu. Gerðu þeir hvort tveggja í senn, er sjóinn sóttu, öfluðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.