Andvari - 01.01.1941, Qupperneq 26
ANDVABI
Ályktanir Alþingis vorið 1941
um stjórnskipun og sjálfstæði Islands.
Eftir Bjarna Benediktsson prófessor.
I.
Virðing fyrir gerðum samningum, lögum og rétti er tví-
mælalaust ein af höfuðstoðum menningarinnar. Gerða samn-
inga, lög og rétt ber því að hafa í heiðri. Af því leiðir þó
engan veginn, að sá hafi ætíð rétt fyrir sér, sem bókstafinn
þræðir. Engum löggjafa né samningsaðila hefur enn tekizt að
sjá fyrir öll þau atvik, sem fyrir koma í hinu lifanda lífi-
Blind fylgd við bókstafinn, hvernig sem á stendur, hlýtur oft
að leiða til fullkomins ranglætis og hafa í för ineð sér algera
ringulreið réttarskipunarinnar. í þessu felst samt eigi, að
ætíð megi víkja frá orðum laga og samninga, er þau koma
hart niður. Þá, sem ella, verður að rata meðalhóf, og er það
raunar vandfundið. En lögfræðin vísar þar leiðina.
Þekking á settum lögum og helztu samningstegundum er
að vísu sjálfsagður þáttur lögfræðinnar. Sá, sem numið hefði
þetta eitt, væri þó eigi miklu nær.
Ákvæði þau, er berum orðum hafa verið sett, eru eilífum
breytingum undirorpin. Heilir lagabálkar eru oft felldir úr
gildi með einum pennadrætti. Aðalatriði lögfræðinnar er því
eigi þekking á þessu. Hitt skiptir miklu meira máli að vita,
hvernig túlka ber lög, samninga og aðrar skuldbindingar. Að
læra, að fyrirmæli laga og samninga hafa mismunandi ríkt
gildi, að sum her að ineta meira en önnur, og að á milli þeirra
er oft samhengi, þannig að öðru má eigi beita, ef hinu hefiu'
eigi verið hlýtt. Að átta sig á, að við framkvæmd laga verður
oft að liafa í huga fyrirvara, sem löggjafinn þegir um, en þú