Andvari - 01.01.1941, Side 29
ANDVARI
Ályktanir Alþingis vorið 1941
25
Alþinga í röð með þingrofi á milli og staðfestingu handhafa
konungsvalds. Hins vegar er, hvorki um þetta ákvæði stjórnar-
skrárinnar né önnur, í henni sjálfri nein heimild til að bregða
frá þeim í einstökum tilfellum, þegar sérstök atvik eru fyrir
hendi.
Slík heimild þekkist þó um sum ákvæði stjórnskipunarlaga
annarra ríkja. Einkum er það samt tíðkað í Englandi, móður-
landi þingræðis og frjálslegra stjórnarhátta, að víkja frá al-
mennum reglum stjórnskipunarinnar, þegar mikið liggur við.
En þar stendur að vísu sérstaklega á, því að þar er engin
formleg stjórnarskrá, sem erfiðara sé að breyta en öðrum lög-
um, eins og á íslandi og víða annars staðar er. Sá sveigjanleiki
stjórnskipunarinnar, er af þessu stafar, hefur þó sízt gert gildi
hennar né lielgi minni í Englandi en í öðrum löndum, því
að England hefur lengst allra ríkja staðið af sér brotsjóa bylt-
inga þeirra, sem löngum vilja umturna stjórnskipun ríkjanna,
og einmitt þangað hefur fyrirmynd frjálsra stjórnarhátta og
lnngræðis víðsvegar um lönd verið sótt, eins og þegar er sagt.
Astæða þessa er sú, að stjórnskipuninni hefur aldrei verið of-
koðið. Hún hefur verið sveigð til eftir þörfurn lifanda lífs,
andi hennar ætíð verið metinn meira en bókstafurinn, aðal-
atriði meira en aukaatriði.
í Englandi hefur það eigi þótt varhugavert, þegar ríkið hefur
verið í hættu, eins og á heimsstyrjaldarárunum 1914—1918
°g í ófriði þeim, er nú stendur, að fresta þingkosningum. Ráða-
menn þar í landi hafa nú m. a. s. látið uppi, að varhugaveit
væri að láta almennar þingkosningar fara fram fyrr en að
bi-em árum liðnum frá styrjaldarlokum, þvi að ólíklegt væri,
að fyrr yrði atvikum svo háttað, að kosningar gætu orðið sönn
»iynd þjóðarviljans. Frestun þingkosninga er í Englandi
ákveðin með venjulegum lögum, og brýtur það þar að vísu
eigi í bága við nein stjórnarskrárfyrirmæli, því að þau eru eigi
til. En þar, eigi síður en hér, eru þingmenn kosnir til ákveð-
ms tíma, og ef þeir framlengja umboð sín sjálfir umfram
þann tíma, þá er þar um alveg sams konar atferli gegn kjós-
endum að ræða í báðum löndunum. í Englandi efast þó