Andvari - 01.01.1941, Qupperneq 41
ANDVARI
Ályktanir Alþingis vorið 1941
37
til þess vera niður fallinn, jafnvel þótt hún hefði ella verið.
En það skiptir ekki máli, því að engin skylda er til að bera
slík mál fyrir fram undir dóm. Ríki fer auðvitað að þessu
leyti að með sama hætti og einstaklingur mundi gera. Ef
það telur sig eiga rétt til að rifta samningnum og vill gera
það, þá beitir það rétti sínum þegar í stað og lætur það ríkið,
sem vanefndi, um, hvort það lætur málið ganga til dóms. I
þessu felst að vísu nokkur áhætta fyrir þann, sem riftir, því
að enginn getur ábyrgzt, hvernig annar dæmir um mál.
En ef á viðurkenndri staðreynd er byggt og eigi framar
farið en fremstu alþjóðafræðimönnum kemur saman um,
að skemmra geti rétturinn eigi náð, sýnist eigi óvarlega farið.
Island er að sönnu öllum öðrum ríkjum máttarminna, en ef
það má eigi ætla sjálfu sér svo ótvíræðan rétt sem þennan,
þá er ljóst, að þjóðarétturinn gildir einungis fyrir þá, sem
valdið hafa. Þeir, er nú tjá sig vera að berjast fyrir þjóða-
réttinum, geta eigi haldið slíku fram, og hinir hafa sannarlega
rift samningum með hæpnari heimild en þessari.
Allt annað mál er hitt, hvort hyggilegt hafi verið að beita
þeim rétti, sem til riftingar var fenginn. Svo sem að framan
er sagt, greindi menn um skeið nokkuð á um það. Áður en
lauk, urðu þó allir sammála og sameinuðust um að fara að
engu óðslega, meðan svo stæði sem nú, en láta jafnframt ótví-
i'ætt uppi, að fallinn væri endanlegur reynslunnar dómur um
fánýti hinna fornu sambandstengsla og einbera skaðsemi þeirra
fyrir Island.
Ætla verður, að Alþingi hafi einmitt ratað hið rétta meðal-
hóf með þingsályktun þeirri um sjálfstæðismálið, sem sam-
Þykkt var 17. maí s. 1. og hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að lýsa yfir því:
að það telur ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita
við Danmörku, þar sem ísland hefur þegar orðið að taka í sín-
ar hendur meðferð allra sinna mála, enda hefur Danmörlt ekki
getað farið með þau mál, sem hún tók að sér að fara með
í umboði íslands ineð sambandssamningi Islands og Danmerk-
ur frá 1918.