Andvari - 01.01.1941, Qupperneq 46
42
Jónas Jónsson
ANDVABI
því að eyðileggja þessa samlanda sína með þlóðugum innan-
landshernaði og svipta þá eignum, landvist eða lífi. Fordæmið
var glöggt frá Rússiandi. Kommúnistar höfðu þar tekið eignir
andstæðinga sinna, hvar seni til náðist, og hvergi unnað þeim
griða.
Það þarf varla að spyrja, hvaða svar miðstétt og efnamenn
Frakklands gáfu rússneslta flokknum í landinu. Þeir fyrir-
litu hann, óttuðust hann og hötuðu hann. Þeir skildu, að hér
var á ferðinni mannfélagshreyfing, sem ekki var til fordænii
um í allri sögu landsins. Hér var myndaður innlendur flokk-
ur, undir útlendri yfirstjórn, sem lýsti yfir, að hann ætlaði
við fyrsta hentugt tækifæri að taka af þeim, sem eitthvað
áttu í landinu, allt, sem flestum mönnum er kærast: frelsið,
fjármunina og lífið. Margir þeir menn, sem bjuggust við árás
kommúnista, hófu það, sem þeir nefndu sjálfsbjargarstarf-
semi. Þannig mynduðust leynifélögin „Eldkrossinn“ og
„Munkahetturnar“. Það var félagsskapur, sem myndaður var
eftir fyrirmyndum fasista og nazista. Báðir þessir flokkar
stóðu í sambandi við áróðursmenn Hitlers og Mussolinis.
Báðir þessir leyniflokkar og margir aðrir Frakkar litu á sam-
landa sína, kommúnistana, seni svarna fjendur, hættulegri öll-
um öðrum óvinum. Að dómi þessara frönsku manna var engin
önnur leið opin fyrir þá og þeirra stétt heldur en að breytt
yrði um stjórnarskipun í Frakklandi, lýðveldið og lýðræðið
afnumið, en í þess stað kæmi einræði og náin samvinna við
Þýzkaland og Italíu. Eitt af fyrstu verkum slíkrar einvalds-
stjórnar í Frakklandi hlaut samkvæmt skoðun þessara manna
að vera það að uppræta bolsevismann í landinu, svo að ekki
þyrfti að óttast öreigabyltingu.
Nú var svo koniið, að Stalin átti opinberan flokk í Frakk-
landi, með miklum blaðakosti og kjörfylgi. Hins vegar var
fylgi fasista og nazista lítt sýnilegt á yfirborðinu. En ítök
þess voru öllu sterkari en kommúnistanna. Sú hreyfing öll
hné til fylgis við stefnu Hitlers og Mussolinis. Margir for-
svarsmenn hennar í Frakklandi töldu nauðsynlegt, að Frakk-
laoid tapaði styrjöld móti Þjóðverjum, svo að samstarfið rofn-