Andvari - 01.01.1941, Síða 48
44
Jónas Jónsson
ANDVAnl
Eandaríkin var verk franskra nazista, sem köstuðu sér í faðm
erlendu einræðismannanna, til þess að vernda sjálfa sig og
cignir sínar frá innanlandsstyrjöld í Frakklandi, þar sem
kommúnistar væru annar aðilinn, eins og 1917 í Rússlandi.
í fljótu bragði má lita svo á, að það séu franskir nazistar,
sem beri ábyrgð á hruni Frakklands, og vist er um það, að
þeir störfuðu í styrjöldinni sem bandamenn Hitlers og Musso-
linis. En ræturnar liggja þó dýpra. Uppruni þeirra mein-
semda, sem brjótast fram í starfi fimmtu herdeildanna, stafar
frá kommúnismanum. Verður því að víkja með nokkrum orð-
um að þróun hinnar alþjóðlegu öreigahreyfingar.
IV.
Núverandi styrjöld er ekki nema að nokkru leyti átölc milli
þjóða. Það má nú öllu fremur segja, að þessi ófriður sé glíma
milli stétta. Annars vegar hafa forkólfar öreigastefnunnar
borið eld að arfasátu þjóðanna. Síðan hafa fulltrúar efnastétt-
anna komið til leiks og blásið að glæðunum.
Fyrir nálega tveim öldum, í það mund, þegar Skúli Magnús-
son fluttist suður um heiði frá Skagafirði og gerðist land-
fógeti á íslandi, var í Englandi gerð sú uppgötvun að knýja
verkvélar með gufuafli. Fylgdu margar skyldar uppgötvanii’
í kjölfar gufuvélarinnar, og er talið, að þá hafi byrjað hin
mikla vélaöld nútimans. Áður var orka mannsins megin-
hreyfiafl við menningarstörfin. Nú kom eimorkan og síðan
raforkan í þjónustu mannanna. Urðu þessar tvær stallsystur
ærið stórtækar. Framleiðslan í heiminum óx með risaskref-
um og auðmyndun að sama skapi. Þar, sem námur voru auð-
ugar eða krossgötur á verzlunarleiðum, risu upp stórar borgir
og oft ærið skjótlega og með lítilli fyrirhyggju um lífskjör
borgarbúa. í hinum nýju iðnaðar- og verzlunarborgum skipt-
ist borgarlýðurinn mjög í tvær andstæðar sveitir um efnahag
og afkomu. Þeir, sem áttu námur, verksmiðjur,' skip eða
verzlunarfyrirtæki, söfnuðu miklum auði, en iðjumúgurinn,
sem vann í námunum og við verkvélarnar, var blásnauður og
vanræktur um flesta hluti. Urðu oft illvig átök milli auðstétt-