Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 69

Andvari - 01.01.1941, Page 69
ANDVARI Málbótastarf Baldvins Einarssonar 65 og íslénzka siði, en lutu því öllu, sem danskt var. Má geta nærri, hver áhrif Bjarni Jónsson heiur haft á lærisveina sína í þessum efnum, en þeir urðu mjög margir, því að hann gegndi skólameistaraembætti í Skálholti lengst allra — eða í 27 ár samfleytt. En tillögur skólameistarans náðu ekki þeirn árangri, sem til var ætlazt. Ýmsir mætir menn risu öndverðir við þeim og héldu á lofti merki Eggerts Ólafssonar og þeirra annarra, er vildu veg íslenzkrar tungu sem mestan, enda var nú eigi alllangt að híða þess, að hæfist sú málreisn, sem „var dögun í norrænni nótt“. II. Sumarið 1801, þrem árum eftir andlát Bjarna slcólameist- ara, fæddist þeim hjónunum á Molastöðum í Fljótum, Einari Guðmundssyni og Guðrúnu Pétursdóttur, sonur, sem var vatni ausinn og nefndur Baldvin. Hann var brátt efnisbarn hið mesta og umfram jafnaldra sína. Er Baldvin óx, leyndi það sér ekki, að hann var bæði skarp- greindur og námgjarn. „Þegar hann var 14 vetra, varði hann öllum frístundum sínum til að lesa góðar bækur, með svo mikilli ástundan, að varla sást hann borða mat sinn, nema hann hefði bók við hönd sér. Stundaði hann þá mest að lesa og skilja danskar bækur, komast niður í reikningi og að skrifa vel. Lærði hann það allt tilsagnarlaust af eigin ramleik".1) Baldvin stundaði alla algenga vinnu, bæði á landi og sjó, á uppvaxtarárum sínum. Þegar hann var á 18. ári, var hann formaður á hákarlaskipi föður síns og aflaði ágætlega. Hann var kjarkmikill og djarfur, öruggur og úrræðagóður, hvað sem að höndum bar. Veturinn 1820—1821 hóf Baldvin að lesa undir skóla. Framan af las hann latinu — nálega tilsagnarlaust — heima hjá sér, þegar eigi bönnuðu sjóróðrar eða sauðagæzla. Sóttist honum námið ágæta vel. Haustið 1822 kom hann í Bessa- 1) Ný félagsrit, 8. ár, VI. bls.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.