Andvari - 01.01.1941, Blaðsíða 88
84
Steinþór Sigurðsson
ANDVARI
b) Jarðhiti. Á síðari árum hafa augu manna hér á landi
opnazt fyrir því, hve geysimiklir möguleikar liggja í hagnýt-
ingu jarðhitans. Hefur risið upp allmikil rækt í gróðurhúsum,
sem hituð eru með jarðhita, einstök hús og bæir hafa verið
hituð upp, sundlaugar byggðar, hluti Reykjavíkurbæjar hit-
aður með laugavatni og þegar hafin virkjun til þess að allur
bærinn verði hitaður á sama hátt. Mikið hefur verið rætt og
ritað um þessi mál undanfarið, og verður ekki farið inn á
sögulega þróun málsins hér.
Eðli jarðhitans hér hefur verið rannsakað af ýmsum mönn-
um. Af íslendingum hafa þeir Þorkell Þorkelsson veðurstofu-
stjóri og dr. Trausti Einarsson lagt drýgstan skerf til þeirra
inála. Meðan aðeins er um það að ræða að virkja heitt vatn,
sem sjálfkrafa rennur upp á yfirborðið, kann að vera, að það
hafi litla þýðingu að vita nokkuð um eðli jarðhitans, nema
hvað sú spurning kann að valcna hjá mörgum, hve lengi þeir
gætu orðið þessara gæða aðnjótandi. Sé hins vegar um það að
ræða að auka vatnsmagn eða hitastig með borunum eða á
annan hátt, hefur það mikla þýðingu að vita sem mest um eðli
og uppruna hitans. Þvi rniður eru skoðanir manna á þessum
málum mjög mismunandi, og hætta er á því, að langt sé í
land um það, að fyrir fram sé hægt að segja nolclcuð með vissu
um það, hvort borun muni bera árangur eða ekki. Flestir
munu þó vera þeirrar skoðunar, að í jarðhitahéruðum megi
víða fá heitt vatn eða gufu ineð borun, en víða mun þurfa að
bora svo djúpt, að virkjun kemur ekki til greina vegna kostn-
aðar.
Rannsóknaráð ríkisins hefur frá upphafi liaft jarðhitamálið
til athugunar. Var keyptur lítill jarðbor, og hafa verið bor-
aðar með honum nokkrar holur víðs vegar á landinu. Rann-
sóknaráðið hefur elcki sjálft rekið borinn, heldur leigt hann
gegn vægri leigu til ýmissa, sem hafa óslcað eftir borun. Bor-
inn á að geta borað um 4 cm víða holu niður í 150 in dýpt,
eða 8 cm víða holu niður i 75 m dýpt. Enn hefur ekki verið
boruð með honum hér nema rúmlega 80 metra djúp hola.
Hefur einn maður, Sveinn Steindórsson, annazt boranirnar,