Andvari - 01.01.1938, Blaðsíða 27
Andvari
Þjóðlið íslendinga
23
málum hafði einlægt haldizt við í Þingeyjarsýslu. Þar
var vagga Þjóðvinafélagsins, frá 1870, sem var í upp-
hafi pólitískt félag. Þingeyingar munu flestum íslend-
■ngum fremur hafa fylgt Jóni Sigurðssyni að málum, og
tekið jafnan virkan þátt í frelsisbaráttunni. Þingmaður
beirra hafði frá því litlu eftir miðja öldina, og mest af
þeim tíma á þingi, borið uppi merkið með nafna sínum.
Honum var enn eigi ljúft að láta það niður falla, eins
°3 síðar verður sýnt. Um þessar mundir voru 4 þing-
Wenn búsettir í Þingeyjarsýslu, — þjóðræknir menn all-
,r og mikilhæfir. En samt voru það ekki þeir, sem stóðu
að stofnun Þjóðliðsins, heldur aðallega ungir menn og
uPPvaxandi. En tildrögin að stofnun Þjóðliðsins komu
utan að, og voru þau, er nú skal greina:
í blaðinu Fróða nr. 138, 5. júní 1884, stóð svohljóð-
andi:
Herör.
Vér leyfum oss að skora á allan almenning á íslandi,
er sjálfum sér er ráðandi, að sækja fund á Þingvelli
Vlð Oxará 10. júlí næstkomandi, til að ræða nauðsynja-
mál landsins og leitast við að ráða bót á því, sem af-
la9a fer. Allir þeir, er geyma minningu Jóns Sigurðs-
s°nar sál. í hjörtum sér, vonum vér að sæki fundinn.—
400 Vestfirðingar.
Sennilega hefir þessi »herör« einnig birzt í sunnan-
oloðum. En nokkru áður höfðum við tveir ungir Þing-
eVingar fengið bréf frá Matthíasi Ólafssyni frá Hauka-
al> síðar þingmanni og fiskimálastjóra, en hann var þá
nngur, brennandi af áhuga um þjóðmál, og að ég hygg
a al-driffjöðrin í þessum félagsskap Vestfirðinga, er stóð
a" við þessa herör þeirra. í bréfinu, sem ritað var
Vrir hönd félags þessa, er skýrt frá því, og skorað á