Andvari - 01.01.1938, Síða 97
Andvari
Kreppa og kreppuráðstafanir f Ástralíu
93
f'að hafði verið um það samið, að stjórnin mætti ekki taka
ut úr samveldisbankanum meira en 25 miljónir punda.fram
Vhr innstæðu hennar. En 30. júní 1931. við lok fjárhags-
arsins, hafði tekjuhalli á fjárlögum ársins vaxið um 30 milj.
Punda, en alls nam hallinn 63 milj. Þá mátti og gera ráð
fyrir því, að 40 milj. bættust við á næsta ári, ef ekki væri
tekið alvarlega í taumana.
Algert gjaldþrot vofði yfir landinu.
En hér er þó ekki allt talið. Þúsundir bænda voru svo
sokknir í skuldir, að þeir gátu ekki rekið búskap sinn með
tuí verði, sem þá var á afurðum þeirra. Þá voru og 500 000
manna atvinnulausir eða um 30 °/o allra skrásettra verka-
U’anna. Þá voru og vextirhækkaðir vegna þess, hve öll verzl-
un og íræði væru á hverfandi hveli, og ekki bætti það úr skák.
Scullins stjórninni tókst að sitja við völd í 18 mánuði, án
fress að til skarar skriði. Að lokum varð hún að hefjast
handa og leita nýrra úrræða.
Scullin forsætisráðherra kvaddi nú alla forsætisráðherra
eströlsku fylkjanna til fundar við sig í Melbourne. Kom
teim saman um að taka allir höndum saman til þess að
^ierga landinu úr yfirvofandi háska. Tóku foringjar allra
*°hka þátt í þessu, og féllust allir á að flytja stefnuskrá,
seni sérfræðingar í alvinnu- og fjármálum höfðu samið.
nún var síðan kölluð >stefnuskrá forsætisráðherranna*.
(The Premiers’ Plan).
Aðalatriðin í stefnuskrá forsætisráðherranna voru þessi:
T 011 ríkisgjöld, sem unnt væri að breyta, skyldi lækka
um 20%.
Ollum innlendum ríkislánum skyldi breyta þannig, að
uextir lækkuðu um 22 V2 %.
• Skatta skyldi hækká sem svaraði 8 milj. punda á ári.
Með þessum ráðstöfunum var talið, að ríkið mundi græða
Um 26 milj. á ári, og talið líklegt, að næsta árið færi tekju-