Andvari - 01.01.1915, Síða 44
36
Fiskirannsóknir
vatni með þvi að láta frjóvga silungshrogn við Mý-
vatn, klekja þeim þar að nokkuru leyli og flylja þau
svo til frekara klaks í Svartárvatni.1) Einnig klakti
síra Árni Jónsson dálítið i Skútustaðatjörn.
Framkvæmdir urðu þó ekki miklar lengi vel.
Haustið 1901 eða 1902 sendi eg sira Árna á Skútu-
stöðum, sem var einn helzti hvatamaður þessara til-
rauna, fyrirmynd af einfaldri linda-klakvél. Var smíð-
uð regluleg vél eftir henni og einhverjar tilraunir
gerðar með hana, og með að klekja í botni; skýrsl-
ur fekk eg engar um það, en þær munu liafa mis-
tekisl og vélin liðið undir lok. Á þessum árum þótti
veiðinni síhnigna í vatninu, og til þess að reyna að
ráða einhverja ból á því, var haldinn fundur á Geit-
eyjarströnd 7. febr. 1905, fyrir forgöngu síra Árna,
og stofnað »Veiðifélag Mývatns« og varð (og er enn)
Stefán Slefánsson, bóndi á Ytri-Neslöndum, formaður
þess. Samkvæmt 3. grein félagslaganna á að reyna
að auka og vernda silunginn í Mývatni með því:
a. friða riðasilung á vissum svæðum
b. friða smásilung innan vissrar stærðar
c. klekja út hrognum
d. ákveða lágmark möskvastærðar á lagnelum
e. takmarka hitasilungsdráp og
f. eyða fiskiöndum og fæla þær af riðum.
Félag þetta tók þannig silungaklakið á stefnuskrá
sína, og varð það lil þess að farið var að gera ýtar-
legri tilraunir.
Ætla eg nú að skýra frá því helzta, sem gert
hefir verið síðan, og fer þar einkum eftir skýrslum
þeim, skrifiegum og munnlegum, sem formaður fé-
1) Sjá skýrslu Feddersens í Andvara XI. bls. 124.