Andvari - 01.01.1915, Page 132
124
Heimilishættir Eskimóa.
þangað er hvalarar hafa bækistöð sína, tuttugu míl-
um vestar á ströndinni. Honum fanst mikils um
það vert, ef Eskimói gæti skrifað: »Ég sendi yður
þrjú tóuskinn. Mig vantar te, skotfæri og eldspýtur«.
Við skeggræddum lengi kvölds þessu líkt. Að
vísu var tungukunnáttu minni í ýmsu áfátt, og varð
Roey stundum að hlaupa undir bagga með mér, þvi
hann skildi mig betur, enda höfðum við verið lengur
saman. Við hlógum oft dátt, þótt litið væri hláturs-
efni. Ýmislegt var það í fari Eskimóa, sem mér fanst
mjög til um, bæði þá og síðar, en minnisstæðast
mun mér það, hvað þeir voru allir jafnviðmótsþýðir
daglega og háttprúðir.
í kofum Eskimóa 'hjá Mackenziefljóti er húsa-
skipun þannig háttað, að göngin eru grafin niður en
ekki baðstofan. Hún er i lögun líkt og fjórblöðuð
stjarna og er uppgangan í einu horninu og fallhleri
yfir. Þetta er einn af kostum Eskimóakofa. Hafa
þessir norðurbyggjar að líkindum tekið fyr eftir því,
en þeir, sem í hlýrri löndum búa, að kalt loft er
þyngra en heitt loft og leitar eklci upp þangað sem
heitt er fyrir. Uppgangan er því liöfð opin dag og
nótt. Leggist maður á pallskörina og teygi handlegg-
inn niður af henni er brunafrost á fingrunum þólt á
skörinni sé þægilegur baðstofuhiti.
Gólfið í baðstofunni er úr rekaviði og eins pallar
i hornunum, átta þumlungum hærri en gólíið sjálft.
Á þremur þessara palla er sofið, en í fjórða horn-
inu er uppgangan, sem fyr er sagt. Sofa menn þar
þannig, að fælur vita út í liorn, en höfðalagið er nær
skörinni. Baðstofan er trjáreft og hvilir grindin á
stoðum, en þakið er úr torfi. Á henni er einn skjá-
gluggi ofarlega á þekjunni. Skjárinn er annaðhvort