Andvari - 01.01.1915, Side 48
40
Fiskirannsóknir
milli klaktíma (vor og sumar) voru kassarnir teknir
upp og þurkaðir.
Þetta mátti heita mjög einfaldur útbúningur, en með
honum og með þeirri natni, sem menn sýndu á ýms-
um stöðum við þetta, tókst þó að ná svo góðri út-
komu, að veturinn 1911—12 var klakið út eitthvað
yíir 100,000 seiöum í 15 kössum, eða hátt á 7. þúsund
í kassa og má það heita ágætt.
Sökum þess að klaktilraunirnar hafa aðeins
verið gerðar við kaldavermslalindir, þá hafa þær
verið takmarkaðar við sunnan- og austanvert vatnið,
því að þesskonar lindir eru aðeins þeim megin
við vatnið. Auk þess hefir aðeins verið gerlegt að
hafa þær þar sem lindirnar hafa ekki verið altof
langt frá bæjum, vegna eftirlitsins. Veturinn 1912—
13 (og svipað hefir það verið síðan, þangað til í
vetur) var því þannig háttað, að mest var klakið á
Kálfaströnd : þar voru 8 kassar og voru þeir settir í
lindir í svo nefndum Grjótavogum, alllangt frá bæn-
uni. f*ar kemur mjög mikið kaldavermslavatn und-
an hrauninu (hiti 5,0°—5,5°). Næst er Geiteyjarströnd
með 5 kassa, í nokkurum lindum (6,2°) rétt hjá hæn-
um; svo voru 2 kassar og 1 byrgi í Garði, í lindum
(6,0° og 6,7°) rétt fyrir sunnan bæinn, 2 í Vogum,
2 á Skútustöðum og 1 á Geirastöðum. Allir þessir
bæir eru við vatnið að auslan, sunnan og suðvestan
(Geirastaðir rétt við Laxá). Auk þess er nokkurt
klak (2 kassar) frá bænum Grænavatni, í lindum
(6,0°—6,7°) við Grænavatn, en vatnið hefir afrensli
i Mývatn (eftir Grænalæk). Svo hefir bóndinn í
Hörgsdal (sá bær er alllangt frá Mývatni, frammi í
heiðinni S V af Gautlöndum) klakið um nokkur ár