Andvari - 01.01.1915, Blaðsíða 52
14
Fiskirannsóknir
verða að því. Eg áleit því m.jög æskilegt, að gerðar
yrðu aldursrannsóknir á silungi, einkum bieikju úr
Mývatni, og til þess að fá einhverju ágengt í þá átt
tók eg hreistur af þeim silungum, sem veiddir voru
meðan eg dvaldi við Mývatn og svo fekk eg Stefán
til að safna í viðbót og fekk þannig hreistur af 62
bleikjum og 34 urriðum, sem svo var sent Dr. Knut
Dahl til rannsóknar. Hefir hann nú lokið þeirri
rannsókn og sent mér skýrslu um hana. En bæði
af því að hún kom eigi fyrri en þessi skýrsla mín
var fullsámin og af því að svo fátt var af fiskum til
rannsóknar, að Dr. Dahl segist ekki geta dregið
neinar fullnaðarályktanir af henni um ýmis atriði,
þá ætla eg aðeins að birta hér hið allra helzta úr
henni og það sem Mývelningar helzt munu þurfa að
vita, o: það sem snerlir aldur og vöxt fiskanna, enda
er það í sjálí'u sér mjög merkilegt. Fullnaðarskýrslu
vildi eg birta, þegar meira væri fengið af hreistri af
Mývatnssilungi og rannsakað ásamt hreistri af 200
silungum úr Þingvallavatni, sem eg liefi þegar fengið
hreistur af.
Nokkurar af bleikjunum, eða 19 fiskar, voru
veiddir 25. og 26. júlí 1913, og var aldur þeirra, stærð
og þyngd þannig:
Aldur Tala Lengd Meðal- lengd Pyngd Meðal- þyngd
7 vetra 3 44—40 cm. 45 cm. 1000—1100 gr. 1050 gr.
6 — 13 39—50 — 43 — 750—1400 — 890 —
5 — 3 33-39 — 36 — 550—1100 — 785 —
Hinar bleikjurnar, 43, voru veiddar í september
og fram lil 4. október 1913; aldur þeirra, slærð og
þyngd var þannig: