Andvari - 01.01.1920, Page 18
X
Skúli Thoroddsen.
| Andvari.
lega sniðna eftir nýlendustjórnarfyrirkomulagi Breta,
og urðu um málið miklar og harðar umræður, en
svo lauk, að það varð enn óútrætt. En eflir þingið
urðu miklar og svæsnar umræður um málið —
»Miðlunina« sem svo var kölluð — og tók Skúli
mikinn þátt í þeim og lagðist eindregið á móti benni.
Hygg eg, að segja megi, að á þessum árum hafi Þjóð-
viljinn verið öruggasta sjálfstjórnar- og framsóknar-
blaðið á þessu landi. Hann var líka skrifaður af
miklu meira fjöri og minni undirgefni, en þá var títt
í íslenzkri blaðamensku, enda mun hann þá hafa
náð mikilli útbreiðslu meðal sjálfstjórnarmanna, ekki
að eins vestanlands, heldur og í öðrum landsfjórð-
ungum og þó einkum norðanlands, þar sem mesl
gætti áhrifa sjálfstjórnarforkólfanna Jóns á Gautlönd-
um og Benedikts sýslumanns Sveinssonar.
Jón á Gautlöndum hafði látist af slysi á leið til
Alþingis 1889, og var því sæti hans á þingi autt, en
hann hafði verið þingmaður Eyfirðinga; skyldi kjósa
þingmann í stað hans vorið 1890. Mótstöðum. stjórn-
arskrárendurskoðunarinnar höfðu látið töluvert á sér
bera undanfarin ár þar í héraðinu og haldið úti blaði
málstað sínum til eflingar, enda voru 3 konungkjörnir
þingmenn búsettir þar. Fyrir þingrofskosningarnar
1886 höfðu þeir hafl sig svo í frammi, að fylgis-
mönnum stjórnarskrárendurskoðunarinnar þótti ekki
trygt að etja óvöldum mönnum gegn þeim, og
varð það úr, að foringjarnir sjálfir, Benedikt sýslu-
maður og Jón á Gautlöndum, yfirgáfu sín gömlu
kjördæmi, sem hvorl sem var voru trygg, buðu
sig fram í Eyjafirði og unnu þar hinn glæsileg-
asta sigur. Nú þegar Jón var látinn, þótti miðl-
unarmönnum vænkast silt ráð. Ekki þótti þó ráðlegt