Andvari - 01.01.1920, Blaðsíða 171
Andvari.] Frá Eiriki Magnússyni og Jóni Sigurðssyni 131
ápekk. Eg hefi haft gaman af bréfunum heiman að, sum-
um hverjum, einkum hinna yngri manna. Pau eru öll full
með voðaspár um pingrifrildi og pólskan rikisdag með
bölbænir yfir höfði Jóni, ekki samt Sigurðssyni, fyrir það
að hann vilji trítla með hækju sína á höfðum enna beztu
manna. Eg er annars hræddur um, að það sé einhver
fjandinn i sumblinu, sem brugga á Jóni halta, pví aldrei
hafa menn — yngri sem eldri — verið jafnæstir gegn karl-
greyinu og nú: eru peir, eftir bréfum að dæma. En hann
varar sig heldur ekki á einu, að pað er ilt fyrir pann, er
verða vill populær blaðamaður og ætlar að halda pjóð-
hylli sinni, að ísólera sig svs mikið frá hinni upprennandi
kynslóð eins og Jón gjörir og jafnframt frá embættismönnun-
um.-------Vilji Jón verða framfaramaður með oss, en pað
er hann ekki, sem stendur, pó »Áfram« standi í hringnum,
pá ann eg honum pess vel að sigrast á hinum fjölmenna
flokki andskota sinna. En ef hann gjörist ekkert annað og
vili ekki vera annað en nöldrandi illindaseggur í holu
sinni, pá vil eg, að hann fari á hausinn sem fyrst, svo
duglegri kraftar komist par að, er hann situr nú. Það má
kannske virða honum til vorkunnar, að hann sé farinn að
eldast og láta undan; en pví fær hann sér pá ekki hjálp,
pá er með honum sé? Pað er honum hægt, og við pað
ynni hann nýtt bolmagn og yrði oss parfari en hann er
nú. í kláðamálinu hefir blað hans verið hið óparfasta'), og
ekki bundizt fyrir, mér vitanlega, um eitt einasta af alls-
herjar- og velferðarmálum vorum. Pér ættuð nú að benda
Jóni á petta og vita, hvort hann ekki vill láta skipast.
Bágir eru bændurnir okkar til framkvæmda, og pykir
mér peir hafa tekið daufiegar undir mál vor, en eg hafði
búizt við. Þeim er pó óhætt, ómennunum, að taka báðum
höndum við Idéen, pó ekki sé annað. En að fara að nöldra
um hallæri, pegar tala á um alpjóðieg umbrot til frelsis,
er ópolandi lúsablesaskapur. Mér hefði pótt pað ríða á
ekki alllitlu, að bændur hefðu pegar i sumar gengið i eins
konar launfélag við yður, og heitið hver eftir efnum að
1) »Pjóðólfiir« fylgdi niöurskuröl i kláðamálinu. Eirikur Magnússon
hefir r.ýnilega i'ylgt þar Jóni Sigurðssyni og verið lajkningamaður.
*9