Andvari - 01.01.1920, Blaðsíða 192
152 Frá Eiriki Magnússyni og Jódí Sigurössyni Undvari.
2. Rétt er, að féð var léð til að rita íslandssögu,
sem þýða átti á ensku, en var aldrei rituð. En mis-
sögn er, að ganga hafa orðið eftir Jóni að taka við
fúlgunni.
3. Bókasafn Jóns var veðselt.
4. Jón Sigurðsson komst hjá að greiða Powell féð,
er Eiríkur útvegaði. Fyrir milligöngu Eiríks fékk sjálf-
stæðishetja vor 900 ensk pund fyrir ekkert.
Það sést, að Jón hefir ekki vantað viljann að launa
Eiríki drengskap hans við sig. Fyrst býður hann honum
lán úr Powellssjóði, sendir honum síðan — réttara, —
býður honum helmingi meira, en hann fór fram á. Og
af eftirfarandi kafla úr bréfi frá Eiríki, 30. marz
1878, virðist ráða mega, að hann hafi boðið Eiríki
lán, ef honum lægi á, annaðhvort í bréfi eða við
samfundi. Þá hafði loks rætzt úr fyrir Jóni, er —
heiJsan var þrotin og lifið á förum:
- •------»Eg vona, aö þú takir pað bróðurlega, að eg spyr
pig, hvenær pú heldur, aö eg mundi mega eiga von á þinni
stóru hjálp. Eg á nokkuð hart í við credítorana, sem treyst
hafa mér vel og lengi, en pykir alt dragast heldur úr hömlu
fyrir mér. Enda kemur og launabót mín æðiseint, að vera
ekki komin enn eftir 7 ár. En hún er á ferðinni, og nú
eru mínar prospecter eiginlega góðar, og pað er bráð hjáp
að eins, sem eg parf með, og sem næsta ár að öllum lík-
um gjörir mér fært að borga aftur«.
Ekkert sést á bréfunum um, hvort Jón hefir getað
orðið við bæn Eiríks. En sennilegt er, að hann hafi
orðið vini sínum að liði.
Vor þjóðkæri foringi hefir án efa haft meintent
nagdýr í hjarta sér, þar er ósamin sagan vor, eins
og ráða má af »Skírnis«-minningum Indriða Einars-
sonar. Um slikt þurfa engir þeir frétta né frásagna,