Andvari - 01.01.1920, Blaðsíða 162
122 Frá Eiríki Magnússyni og Jóni Sigurðssyni [Andvari.
Háttvirti herra!
Presturinn, síra B(enedikt) Eiríksson1) aö Guttormshaga
í Holtum, hefir beöiö mig aö skrifa yöur fyrir sína hönd
og biðja yður að útvega sér, ef unt er, »máldaga fyrir
jörðinni Haukafelli í Hornafirði með landamerkjum milli
aðliggjandi jaröa, sér i lagi Rauðabergs og þá líka Holta
og HoItasels«. Ennfremur»máldagameð landamerkjum Gutt-
ormshaga og Saurbæjar«. Til stuðnings við þetta siöara
landamerkjabréf lætur hann meðfylgjandi blað fylgja. —
Fyrir það ómak, er þetta kynni að kosta yður, biður hann
mig að skila til yðar að gefa sér reikning, og kveðst hann
skulu borga það, eins og pér áskiljið. Fáist þessir máldag-
ar, getið þér sent mér þá og skal eg koma þeim til skila.
Fyrirgefið flýtinn! yðar
Eiríki Magnússyni.
Eg set bréf þetta hér til þess að þeir, er ókunn-
ugir eru hinu mikla bréfasafni Jóns Sigurðssonar,
fái örlítið sýnishorn þess, hve margs hann hefir ver-
ið beðinn héðan að heiman. Bréfasafn hans nægir
til að koma mönnum í skilning um, hvílík krafta-
kempa hann var.
Nú líða nærri fjögur ár, unz Eiríkur skrifar Jóni aftur,
nema ef týnzt hafa þau bréf frá honum til forseta.
Næsta bréf hans til Jóns er svolátandi:
Reykjavík 29. apríl 1862.
Háttvirti elskulegi herra!
Yðar velviljaða bréf með póstskipinu frá 14. þ. m. fæ
eg yður ekki fullþakkað, og hefi eg ásett mér að nýta mér
sem bezt ráð yðar og heilræði í því. Eg hefi nú skrifað
G(rími) Thomsen og beðið hann liðsyrða um atvinnu
þessa, en hann á, eins og von er, ótnögulegt að gefa mér
meðmæli, því hann þekkir mig að engu, tæpast að nafni.
En sjái hann sér fært, að mæla með mér á einn eða ann-
Séra Benedikt Eiríksson (dáinn 1!)0.1, *.'.6 ára gamall), var móðurbróðir
Eiríks Magnússonar og bróðir Stefáns Eirikssonar'í Árnanesi, er lengi
var þingmaður Austur-Skaftfellinga.