Andvari - 01.01.1920, Síða 95
AndvariJ.
Pjóðmálafundir 1843—1846
55
-og sigldi samsumarstil Kaupmannaliafnar; las hann í fyrstu
lögfræði, en hætti við pað og sneri sér síðan mest að
heimspéki og bókmenntum. 1845 hlaut liann meistarnafn-
bót fyrir ritgerð um Byron skáld, er síðar var gerð jafn-
-gild doktorsnafnbót. Grímur var lengi í flokki Fjölnismanna,
-en gekk i lið með Félagsritamönnum síðar og varð einn
■útgefanda að F’élagsritunum um tíma. Grímur kynntist
meir dönskum stórmennum en títt var um íslendinga um
hans daga, lét og ýmisleg önnur mál til sín taka en bein-
línis íslenzk, var t. d. áliugasamur félagsmaður í »Skandi-
•navisk Selskab«, félagi, er síðar verður vikið að. Jafnframt
ritaði hann talsvert í dönsk blöð og tímarit. Leiddi petta
íillt saman til pess, að Grímur komst á aðra braut en ís-
lendingar eru vanir að leggja á. Hann komst í pjónustu
utanrikisráðuneytis I)ana og var framan af öðru hverju
sendiherraritari bæði í Frankfurt am Main, Brussel og
Paris, en siðast var hann eins konar skrifstofustjóri (De-
partementssekretær) í pessu ráðuneyti, unz breytt var deild
peirri, er hann var fyrir (1866); pá iluttist liann alfarið til
íslands og gerðist bóndi á Bessastöðum á Álftanesi. Að
öðru Lleyti vísast um Grím til rækilegrar ævisögu, er dr.
Jón Porkelsson helir samið og prentuð er í 23. árg. And-
vara (bls. 1—32).
28) Með tilskipun 13. júní 1787 nam Kristján konungur
7. úr gildi einokunarverzlunina á íslandi og gaf verzlunina
lausa við alla pegna Danakonungs frá nýári 1788. Petta
pókti mikil bót frá pví, sem áður var, en samt pókti hin-
um bezlu mönnum ekki komið fullt lag á fyrr en verzlun-
in væri orðin alfrjáls. Börðust margir duglega fjrrir pessu,
bæði í ræðu og riti, einkum á pessum árum, 1840—1850,
en ekki hreif pað fyrr en 1854; pá (15. april) var loks hið
langpreyða verzlunarfrelsi lögleitt hér.
29) Síra Tómas Sæmundsson (1807—1841), síðast prestur
á Breiðabólslað i Fljótshlíð, hafði verið einn aðalmann-
anna í Fjölnisfélaginu. Hann var allra manna áhugasam-
astur um málefni íslands, en naut of skammt við. Fyrir
pessi samskot, er hér ræðir um, var gerður minnisvarði
sá, er stendur á leiði hans í Breiðabólstaðarkirkjugarði.
Æviágrip síra Tómasar er í 6. árg. Fjölnis (bls. 1—6).
30) Jónas Hallgrímsson (1807—1845), skáld og náttúru-