Andvari - 01.01.1920, Page 167
Andvari]. Frá Eiríki Magnússyni og Jóni Sigurðssyni 127
og meyjum í ástavitrunum. Það er fátt i þessum heimi
leiðinlegra en að ferðast um uótt með járnbraut. Ekkert
sést fyrir utan hið fljúgandi fangelsi, en inni er ekki ann-
að, sem auganu skemtir, en hrjótandi höfuð, hangandi
ýmist fram á bringu, út á axlir eða aftur á herðar, velt-
andi til og frá, eftir pví sem vagninn hröklast ájárnbraut-
unum; og yflr þessari svefnugu sjón stendur grútarlampi,
sem sendir bleika skímu niður yfir hin hálfdauðu andlit,
svo manni verður ósjálfrátt á að ímynda sér í svefnrofun-
um, að hann vakni upp meðal bleikra drauga, i fornum
kirkjugarði, sem kölski sé að hala dýpra og dýpra. Þetta
lieflr að minsta kosti ílogið mér í hug í nótt einum tvisv-
ar sinnum, pví draumur og vaka hafa komið sér svo
undarlega vel saman í mínu holdi, að eg hefl orðið að vera
góða stund vakandi, áður en eg hefi getað rekið brott hina
drungalegu drauma, sem hafa gjört mér svefninn svo óvær-
an, að eg hefl ekki haft neina endurnæringu af honum.
Enda er eg nú langt um líkari draugi en manni, bleikur,
grár, fölur, rauðeygður og sígeispandi. Það er ekki gaman
að skrifa bréf í pessu ástandi. Eg ætla nú að fá mér lút-
sterkan kafíibolla, fara síðan i kalt bað og keyra svo út í
bæinn og vona eg, að pað verði heilsusamlegur cur fyrir
moldarrústir mínar«.
Þá er Eiríkur hefir ekið um bæinn, tekur hann
aftur til, þar er var frá horfið, og lýsir fyrir hinum
mikla manni því, er har fyrir sjónir í þessum dýr-
lega »glaumbæ og glæsibæ«, eins og dr. Helgi Péturss
hefir einhverstaðar kallað París.
Nú finnst ekki bréf frá Eiríki til Jóns, fyrr en
nær ári siðar. Bréf það er að ýmsu leyti merkilegt
og sýnir, að Eiríki og Jóni hefir margt á milli farið,
er það var ritað.