Andvari - 01.01.1920, Blaðsíða 190
150 Frá Eiríki Magnússyni og Jóni Sigurðssyni iAndvari.
bætt úr fjárþröng höfðingjans. Alþingi 1875 veitti
honum rífleg heiðurslaun, eftir því sem þá gerðist,
3200 kr. Alþingi 1877 samþykti að kaupa bóka- og
handritasafn hans fyrir 25 þús. kr. Í bréfi þessu
leggur Eiríkur ráðin á um, hversu Jón megi með
hægustu móti losast við lánið Powells, er hann
hafði sjálfur útvegað honum fyrir nærri 12 árum.
Ekki er dofnaður áliugi hans á að verða Jóni að
liði. Hann gerði ekki endasleppt við vin sinn. Bréf
Eiríks 22. nóv. 1877 hljóðar svo:
»Elskulegi frændi.
Eg óska þér af heilum huga til lukku mcð handritasölu
þína og bókasafns. Tryggvi skrifaði mér hér á dögunum og
eg svaraði um hæl þvi, sem mér sýndist þá og sýnist enn
helzt farandi fram á, þegar við erum búnir að koma okk-
ur saman um formið. Eg býst við, að Tryggvi sé búinn að
kynna þér svar mitt, svo eg þarf ekki að taka það upp
aftur hér; en af því eg hefi enn ekkert heyrt frá honum,
vildi eg fá að vita frá þér þá beint, hvað þú leggur til.
Eg held okkur ætti vel að geta tekizt að gjöra Powell
alveg ánægðan með því að gefa honum eítthvað verulegt,
er heita skyldi svo sem íslandsvina, eða Jóns vina memo-
rial eða eitthvað þess konar, ef þér sýnist það ekki oföfugt
i formi. Pví að Powell er fjarskalega hégómlyndur maður.
En þú, sýnist mér, ættir að geta sætt þig við að hafa orð-
ið að beygja þig fyrir injuria temporum. Yfir liöfuð liggur
þetta beinast fyrir, sýnist mér, úr því nýjum samningum
verður að koma á við Powell, og þeim verður að koma á,
til þess að bókasafn þitt verði óheft. Pegar er þú lætur
mig vita, að eg megi byrja að þukla á Páli í þessa átt,
fer eg til London til að tala við hann. Pú skilur mig: að min
hugsun var sú, að þú regretting to be prevenled by circum-
stances of economic nature te offer in repayment of your
debt to Mr. P. more than from £ 15—20 a year, hefðir lagt
mál þetta fyrir intimate political friends þina og fengið þá í
félag með þér til þess að sæma Fowell t. a. m. £ 100 heiðurs-
memorialafeinhverju tæi. Powellgæti varla gjörtminna.sýnist