Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1930, Síða 3

Fálkinn - 20.12.1930, Síða 3
III. 51.—52. r Reykjavik, laugardaginn 20. des. 1930. Hátíðir kristinna manna eiga að vera fagnaðarstundir fyrir augliti guðs. En hátíð lialda ekki aðeins þeir, sem eru glaðir, heldur lika margir þeir, sem búa yfir harmi og kvíða; í sorgarhúsinu sjást líka jólaljós, og þeim, sem á þau horfa gegnum saknaðartár, verða jólin oft dýrmætust. — Því að það var ekki aðeins á jólunum fyrstu, sem Guð sendi engla sína með góðan boðskap til mann- anna. Þeir eru enn á ferðinni hér á jörðu, og síst vilja þeir ganga fram hjá þeim sem gráta. Og skyldu ekld margir hafa þörf þeirrar huggunar og hug- hreystingar, sem felst í þeim boð- skap, sem englar Guðs fluttu forðum hirðunum hjá Betle- hem? Jú, ekki aðeins þeir, sem ástvini syrgja eða eiga í stríði við Hmggim Eftir sira Friðrik Hallgrimsson, dómkirkjuprest. vanheilsu og fátækt, — heldur lika allir þeir, sem þrá að verða fullkomnari menn og Guði hand- gengnari. „Verið óhræddir, því sjá, eg boða yðar mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðum; því að yður er i dag frelsari fædd- ur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ung- barn reifað og liggjandi í jötu". Þennan boðskap flutti engill- inn hirðunum. — Boðskap- ur jólanna er ekki hugarsmíð, heldur sannreynd. Engillinn bendir á viðburð, sem menn geti séð og skoðað. Hann leiðir okk- ur að jötunni í Betlehem og sýnir okkur lítið barn. Barnið óx upp, og lif þess varð hið mikla undur aldanna, — eina fullkomna lífið, sem lifað hefir verið á jörðu. Og síðan hefir boðskapurinn um fæðingu þessa barns verið fluttur á hverjum jólum æ fleirum og fieirum; og hann hefir flutt huggun hreldum og vakið heil- aga gleði í hjörtum þeirra, sem vilja keppa að æðsta marki full- komnunar. Því að dýrlegasta opinberun hins guðlega kærleika er Jesú Kristur. Og hann er, eftir orð- um engilsins, bæði frelsari og Drottinn. — Hann er frelsari; liann er kominn til mannanna til þess að leysa þá úr öllum fjötrum syndar og ófullkom- leika. Og liann er Drottinn; lionum er gefið alt vald á himni og jörðu, og hann hefir ótak- markaðan mátt til að vernda og blessa um tíma og eilífð alla þá, sem vilja aðhyllast liann og þiggja náð hans. Með fæðingu frelsarans hefir Guð sýnt það í verkinu, hve heitt hann elskar mennina og hve ant honum er um þá. Af því að við þekkjum boðskap jólanna og trúum honum, vitum við með vissu, að mannlífið alt og líf hvers einstaks okkar er umvafið kærleika Guðs. I þvi felst sú mesta huggun, sem hugsast getur, fyrir alla, sem sorgir og erfiðleikar lifsins þjá, í þvi felst sá mikli fögnuð- ur, sem eyðir angist og kvíða í sálu trúaðs manns. — Það kem- ur svo margt fyrir okkur sárt og erfitt, sem við skiljum ekki. En það, að við höfum óyggjandi vissu fyrir því, að almáttugur Guð elskar okkur, — það gefur okkur djörfung til að trúa því, að hann muni stjórna öllu okk- ur til góðs, og láta gleðisóluna rjúfa mótlætisskýin á sínum tíma. Og þó að margur verði að bera þunga byrði til dauðadags, þá vitum við að Guð hefir alla eilífðina til þess að hugga, gleðja og blessa börnin sín. Veitum þá viðtöku boðskap hins eilifa kærleika, sem til okkar kemur nú enn einu sinni á jólunum. Lofum Guð og þökk- um honum fyrir jólagjöfina iiimnesku. Þá mun hann, sem er bæði frelsari og drottinn, enn sem fyrr flytja sorgbitnum bestu huggunina og glæða helg- ustu og hreinustu gleðina í hjörtum allra, sem elska föður- inn himneska. Gleðinnar hátíð vjer höldum í dag, hjer þótt sje dapurlegt viða; höfum þá gleðinnar hátíðabrag, hrindum burt sorgum og kvíða. Gleðin af hœðum oss gefin er, gleðinnar höfundi fögnum vjer.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.