Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1930, Qupperneq 4

Fálkinn - 20.12.1930, Qupperneq 4
4 F A L K I N N Jónas gamli formaður var þögull og ábúðarmikill eins og aðsígandi óveður á leiðinni til lands. Hann stóð sjálfur við stýr- ið á fleytunni enda þótt sjórinn væri sljettur eins og spegill. Veðráttan var óvenjulega blíð, eftir því sem gerðist um það leyti árs, því þetta var sem sje sjálf- an aðfangadagsmorgunn. Alheið- ur Iiiminn og hafið eins og stöðu- pollur. Og skamt undan var ströndin, hvít og fögur. Merki- legt hvað óveðrið liafði lægt fljótt! Nóttina fyrir hafði nefni- lega verið ofsa bál, aflandsrok með hrið og frosti. Að vísu hafði þetta ekki staðið nema örfáa Ídukkutíma, — en annað eins veður! Alveg eins og helt væri j-fir mann úr fötu; Jónas gamli bölvaði í hvert sinn sem hann mintist á það. — Mestur hluti áhafnarinnar lá og svaf undir þiljum; aðeins tveir hásetar sátu á lúunni og reyktu. Þeir skröfuðu saman í hljóði og gutu öðru hverju auga til inannsins við stýrið. — Und- arlega snúinn og önugur gamli maðurinn var í dag, og þó hafði alt gengið svo vel. Maður skyldi ekki halda, að honum þætti vænt um að koma heim með drekk- hlaðinn bátinn og án þess að hafa mist svo mikið sem alin af netum i ofsanum í gær. Það var vist, að ekki höfðu allir sloppið svo vel! En það mundi vera hyggilegast að spyrja ckki um ástæðuna, þeg- ar Jónas gamli var í þessum ham. Hann var stundum með þessa dutlunga, hornhölgdin sú. Og gömlum og veðurbörnum sjó- manni fyrirgefst mikið, þegar hann er aflasæll og sanngjarn við skipshöfnina. Því að formann eins og Jónas gamla var ekki hægt að finna í hverri verstöð; — og lengi mátti leita að jafn aflasælum manni! Jónas formaður einblíndi til lapds. — Þarna innfrá, milli tveggja hvitu hnúkanna í suðri, var Knararvík, heimilið hans. Bara að ekkert hafi nú orð- ið að heima! Hann hafði ekki haft ró í sínum beinum eitt augnablik, síðan hann slapp svona vel frá óveðrinu i gær. — Að hugsa sjer að hafa ekki einu sinni mist svo mikið sem kaðal- spotta eða netstúf! Mikil hörm- ung, því líkt og annað eins. Hann hafði beinlínis dokað við, þegar Iiann var að taka upp netin, til þess að gefa sjónum betra tæki- færi. — Þó ekki hefði nema gat komið á netin og þeir mist svo- lítið af öllum þessum fiski, þá gæti hann verið rólegur núna. En ónei. — Netin og fiskurinn var alt með kyrrum kjörum innan borðs, og báturinn var hlaðinn svo að skolaðist við þiljur. Samfeld hepni alt haustið! — Hvort hann hafði ástæðu til að vera órólegur! — Og ekkert ó- happ heldur i sumar sem leið! Jónas gamli þreif til tóbaks- illúðlega og smáblótaði. — Aldrei var hægt að treysta þvi. Og allra sist þegar það var svona sljett og kyrt. Aldrei var maður öruggur fyr- ir sjónum, ónei. Hann tók mest frá þeim, er hann gaf mest. Eins- konar rjettlæti var nú samt í öllu því sem það gerði, satt var það. — Hefði bara netið rifnað í gær! Það hefði orðið nokkur hundruð króna skaði, það hefði hann get- að sloppið með, hver veit hvað lengi. Því hvað sem annars mátti segja um sjóinn, þá var nú sam- viska i honum samt; hann hafði margfalda reynslu fyrir því. ■— Það var ekki hægt að segja ann- dósanna og tók rösklega í nefið. Hann gerðist æ þungbrýnni. — Hvað var nú að hreiflinum? Gat ekki strákurinn látið hann ganga skrykkjalaust. Báturinn hreyfist varla! — Gvendur! — Já, kva’ va’ þa’, formaður? — Geturðu ekki borið almenni- lega á vjelina, strákur? — Jú, jeg makaði hana alla áðan, var svarað syfjulegum rómi úr vjelhýsinu. Jónas ræskti sig stutt og hrækti. Hafið var bjart og gljáandi i austri, vestri og norðri. Eins og eitthvað væri í brugggerð hjá því, fanst Jónasi. Hánn liorfði á það að, en að sjórinn borgaði aftur það sem liann tæki — upp á sinn máta. Til dæmis þegar besta vjelbát- inn hans sleit upp eina óveðurs- nóttina og sjórinn braut hann í spón í Knararvíkurfjöru.—Hann varð undir eins að hleypa sjer í skuldir til þess að eignast nýjan bát. En svo komu líka þrjú mok- fiskiár í röð, svo að liann gat baéði borgað bátinn og svolítið meira. Jú, sjórinn var rjettlátur. Hann gaf mikið og var oft örlátur. —- Og þá var nú í rauninni ekki nema eðlilegt, að hann heimtaði stundum fórnir fyrir alt sem hann gaf. Jónas var altaf vanur að fiska svo vel fyrsta kastið eftir að hann varð fyrir óhappi. — En aldrei hafði hann orðið var við eins mikið af fiski og síld í sjónum eins og árið eftir að elsti sonur hans druknaði. Ójá, það var raunalegt að minnast þess. Hann var aðeins fjórtán ára drengurinn, og allur með hugann við sjóinn. Skömmu áður hafði hann fengið nýja skektu, sem hann var vanur að sigla á víkinni og fyrir utan þeg- ar byr var hæfilegur. Jónas var sjálfur á sjó þegar þetta bar við. Það var einmitt bjartan morgunn eins og núna og stinningskaldi á austan. Hann var að koma að, með bátinn full- an af síld. — Hafði verið bráð- heppinn lengi. — Þegar hann lagðist að bryggjunni voru þeir að koma með likið á milli sín. En í þetta sinn var eins og sjónum findist hann hafa tekið of mikið. Alt það sumar og næsta sumar var Jónas svo ótrúlega heppinn. Hann hlóð bátinn sinn í næstum því hvert einasta skifti þó aðrir fengi ekki bein úr sjó. — Þetta var uppgangstími fyrir hann á allar lundir og loksins liafði hann að kalla mátti fyrir- gefið sjónum. — Maður fjekk ekkert ókeypis hjer i veröldinni hvórt sem var. Alt sem hann átti, átti hann sjónum að þakka. — Og það var gott að vera ekki öreigi. — Hann fyrir sitt leyti þurfti ekki mikils með; en það var drengurinn, sem hann átti eftir. Hann var allur í bókunum og þessari mentun og þvilíku. — Átti að verða stúdent, sem kallað var, næsta ár. Og var nú lieima í jólaleyfinu. — Drengurinn —! Jónas for- maður hrökk í kút við tilhugs- unina. — Vitanlega var það við- víkjandi drengnum — þetta sem hafði komið fyrir. Því að eitt- hvað var það. Það fann hann svo vel á sjer. — Ef drengurinn hefði nú tekið skektuna og farið að sigla — og kollsiglt sig! Ein- mitt svo hafði farið með þann eldri. Og alveg eins og nú hafði hann fundið á sjer þá, að eitthvað hafði komið fyrir. — Gvendur! — Já, kva’ va’ þa’, formaður? — Berðu á vjelina, í heitasta! Ef sjórinn hefði nú tekið þenn- an drenginn frá honum líka, þá gat hann eins vel tekið alt saman og hann sjálfan líka! Jónas gamli gaut hatramlegum augum undan þungum brúnunum út á spegil- fagran og friðsamlegan hafflöt- inn. Og þetta á sjálfan aðfanga- daginn! Aldrei hafði hann trúað annari eins illmensku umsjóinn! Hvað hann mundi vel forðum daga, þegar litli snáðinn kom á móti honum í fjöruna. Þá ldjóp liann altaf beint í fangið á lion- um og reif í skeggið á honum og notaði liann fyrir reiðhest.. og hvernig hann hló og öskraði af

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.