Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1930, Síða 27

Fálkinn - 20.12.1930, Síða 27
27 j ' . . , F Á L K I N N h-i. ;; 'XyJL / >'» , »s ,^\ þeir oft meiru um afdrif mála þjóðar sinnar innan síns verka- lirings, en utanríkisráðherrarnir sjálfir. Þeir hafa meiri kunnug- leika en ráðherrar, sem standa og falla með þingviljanum. > Sendiherrar gera samninga fyrir hönd stjórnar sinnar. Þeir veita hverjum sem hafa vill upp- lýsingar um landið endurgjalds- laust og gera sjer far um, að koma á framfæri til almennings öllum þeim upplýsingum um land sitt, sem því megi að haldi koma. Þeir safna skýrslum frá öðrum þjóðum um þau mál, sem íslendingum er þörf á að fylgjast með í. Þeir greiða fyrir íslensk- um ferðamönnum, sem til þeirra leita, gefa iit vegabrjef, veita kaupsýslumönnum upplýsingar um verslunarhagi þar og þar og markaðshorfur á þessari eða hinni vörutegundinni. Og ótal margt fleira. Sendisveitarbústað- urinn er ríki í ríkinu, undir fána þjóðarinnar, sem að baki stendur. Þeir eru ekki orðnir fáir Is- lendingarnir, sem sótt hafa holl ráð og fengið hafa verðmætar upplýsingar í sendisveit íslands í Kaupmannahöfn. Þær eru ekki orðnar fáar skýrslurnar, sem sendiherrann hefir gefið. Þær eru orðnar margar, samninga- gerðirnar, sem sendiherra íslands hefir annast fyrir íslands hönd, ekki aðeins við Dani og dansk- ar stofnanir heldur og við aðr- ar þjóðir. Má þar minna á samn- ingana við Spánverja, er þeir ógnuðu með svo háum fisktolli, að telcið hefði fyrir markaðinn þar, ef komist hefði í fram- kvæmd, eða við Norðmenn er þeir ætluðu að loka saltketið úti. Og margt og margt. En sumt og það eigi það ómerkasta, er ó- mögulegt að minna á, því að það þekkja engir nema „þeir inn- vígðu“. En vitanlega er það svo um þessa stofnun eins og allar aðr- ar, að gagnsemi hennar er fyrst og fremst undir því komin, liver við stýrið stendur. Velst liver á heldur. — Þó að talsvert væri deilt um nauðsyn sendiherraembættijsins, þá var hinsvegar ekkert deilt um valið á manninum, sem í það var fenginn. Það var öfugt við flest önnur embætti. Þau eru stofnuð deilulaust, en svo þegar skipað er í þau byrjar harmagrátur um „hlutdrægni og hróplegt rang- læti“. Þessi maður, sem allir voru svo sammála um, var Sveinn Björnsson. Og þó var Sveinn Björnsson ekki maður, sem hafði gert sig vinsælan á að vera afskiftalaus um stjórnmát, eða athafnalaus og þegjandi vjefrjett, sem eng- inn vissi hvað vildi eða hvert stefndi. Þvert á móti. Hann hafði, þótt ekki væri fertugur orðinn getið sjer orð, sem einn mesti athafnamaður þessa lands. Hann hafði verið mikið við stjórnmál riðinn og setið á þingi fyrir Beykjavíkurbæ 1914—15 og var enn nýkominn á þing er þetta gerðist. Hann var sonur Björns Jónssonar ráðherra, sem meiri styr hafði staðið um en nokkurn annan stjórnmálaforingja síðan stjórnin fluttist inn í landið og hann stóð sjálfur framarlega i hópi annars aðal stjórnmála- flokksins. Hann hafði starfað hjer í Reykjavík, sem yfirdómslögmað- ur frá því árið 1907 og við stofn- un liæstarjettar orðið annar fyrsti málafærslumaður við þann rjett. Hafði jafnan haft umfangs- mikla málafærsluskrifstofu, set- ið í stjórn fjölda margra fyrir- tækja —- liann var alstaðar sjálf- sagður þar, að sínu leyti eins og Tryggvi Gunnarsson forðum daga. Meðal annars hafði hann verið formaður Eimskipafjelags- stjórnarinnar frá byrjun. Alstað- ar var Sveinn Björnsson. — En alt þetta liafði styrkt hann en ekki veikt. Allir báru virðingu fyrir Sveini og liöfðu traust á honum, hvað sem stjórn- málalitnum leið. Hann liafði get- ið sjer almenningsorðs sem dug- legur maður, glöggur maður, á- reiðanlegur maður. Og ekki síst: hann hlaut að vera vinsæll af öll- um, sem liöfðu sjeð hann eða MYNDIRNAR: Að neðan til vinstri: Sencli- sveitarbústaðurinn i Ny Vestergade 21. Að ofan t. v.: Einkaskrifstofa sendi- herrans. Á mi/ndinni sjást I— Sveinn Björnsson og Jón Krabbe. T. h. Almenna skrif- stofan. Á myndinni sjást Tryggvi Sveinbjörnsson og skrifstofustúlkan, frk. Anna Stephensen. Ea.------ii

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.