Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1930, Qupperneq 30

Fálkinn - 20.12.1930, Qupperneq 30
so P Á L K I N N Þegar útlendir menn gera sjer hug- hugmynd um ísland, dæma þeir það eftir þeim íslendingum, sem þeir þekkja. Engan íslending þekkja jafn margir málsmetandi menn erlendir og Svein Björnsson. Fáninn er tákn hins fullvalda íslenska ríkis og sendi- herrann er hið lifandi tákn þjóðar- innar erlendis. Og íslendingum er sómi að slíkum merkisbera, sem Sveinn Björnsson er. Allar horfur eru á því, að frá árinu 1943 muni íslendingar sjálfir taka að sjer meðferð ut- anríkismála sinna. En ef vel á að fara, þá verður það ekki gert svo í lagi sje, nema að landið eigi þá góðan flokk æfðra manna, sem bæði hafa þekking og kunn- áttu til, að geta komið fram fyrir landsins hönd og rekið erindi þess meðal framandi þjóða. Þeir, sem af mestum sparnaði hugsa um erindrekstur íslands erlendis, komast að þeirri niður- stöðu, að eigi verði komist af með færri en fjóra til sex sendi- menn, en sennilegt er, að þeir rnundu brátt þykja of fáir, þó að sægur ólaunaðra ræðismanna yrði skipaður í öllum löndum, sem íslendingar hafa nokkur yeruleg skifti við. En þó undar- legt megi virðast hefir komið fram tillaga um það, að þessir sendimenn yrðu ekki sendiherr- ar heldur sendifulltrúar (chargé d’affaires), til þess að spara land- inu kostnað við risnuskyldu sendiherra. En það er tvímæla- laust, að þetta yrði dýr sparnað- I- ur því að embættislieitis 6Íns vegna mundu sendifulltrúar alls ekki liafa sömu afstöðu og sendi- herrar hafa og alls ekki hafa þau rjettindi, sem sendiherrum eru veitt. íslendingar verða því að vera vel birgir af „sendiherraefnum“ árið 1943. Það er vonandi, að Island beri gæfu til að hafa nógu af slíkum mönnum á að skipa, þegar þar að kemur. „Gangan fyrsta“ í þessum efnum var ekki ill, held- ur góð. Og þeir sem síðar koma hafa góða fyrirmynd, til að læra af. íslenskum sjálfstæðismálum var það mikið happ, að svo skyldi skipast til um veitingu hins fyrsta íslenska sendiherraem- bættis, scm raun varð á. Ef hinn fyrsti íslenski sendiherra hefði ekki staðið vel í stöðu sinni er liætt við að raddirnar -um „tildr- ið“ hefðu ekki þagnað heldur magnast. Og þá gat farið svo, að ísland væri i dag án þeirrar stofn- unar, sem frekar öllum öðrum hefir sýnt og sannað öðrum þjóð- um, að íslendingar eru til og að þeir eiga rjett á að vera til. ---,!=»=="•- " MYNDIRNAR: Frú Georgia Björnsson og Sveinn Björnsson sendiherra heima hjá sjer. =-';. ■ J 4 i

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.