Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Side 29
útboðsmarkinu (SDR
139.000). Ennfremur skal
þar getið um fjölda
samninga, verðmæti
þeirra yfir og undir
útboðsmörkum
sundurliðað eftir
tegundum, og
vöruflokkum, þjóðerni
seljanda eða
framleiðslulandi.
Að aðildarríki fari almennt
eftir útboðsreglum
GATT. það skal tekið fram
að ísland hefur ekki
gerst aðili að GATT.“
— Eru
Evrópubandalags-
ríkin aðilar að
þessu samkomu-
lagi?
jjEvrópubandalagsríkin
hafa unnið að því að setja
reglur fyrir sinn eigin
markað, þar sem i
grundvallaratriðum er
byggt á GATT
samkomulaginu. Hefur
Evrópubandalagið
ákveðið að auglýsa skuli
útboð á bæði verk- og
vörukaupum og skuli það
gilda um allt sem er að
verðgildi yfir 130.000 SDR.
Að auki hafa þegar farið
fram viðræður milli
Evrópubandalagsins og
EFTA, um það hvernig
hagstæðast sé að haga
úboðum og kynningu á
þörfum. Er staða þeirra
mála sú að náðst hefur
samkomulag milli
bandalaganna tveggja um
að hvert og eitt EFTA ríki
geti gert samkomulag við
Evrópubandalagið um að
tilgreind útboð sem eru yfir
130.000 SDR séu auglýst
og kynnt I opinberum
málgögnum Evrópubanda-
lagsins.
I þessu samkomulagi er
þó búið að undanskilja
allar verkframkvæmdir og
vörukaup í ákveðnum
veigamiklum málaflokkum.
Má þar nefna fjarskipti,
flutninga, vélar og tæki til
orkuframleiðslu,
vatnsveituframkvæmda
og fleiri atriði."
— Hversu mikið af
útboðum eru þá
eftirhjá okkur?
MFyrir okkur íslendinga
er ekki mikið eftir. Mér
segir hugur um að yfir því
lágmarki sem
samningurinn tiltekur séu
ekki nema 10 til 20 útboð
árlegaávegum hins
opinbera.
Samkvæmt GATT
reglunum er um þrjár
megintegundir útboða að
ræða. Það eru í fyrsta lagi
opin útboð, í öðru lagi
lokuð útboð og í þriðja lagi
lokuð útboð með forvali
þar sem útboðið er unnið í
samvinnu við þá sem
síðan skila tilboðum.
Samningum þessum
fylgja kvaðir. Við verðum til
dæmis að þýða útboð á
önnur tungumál, þótt við
hugsanlega fengjum
þjónustu í þeim efnum hjá
Evrópubandalaginu vegna
smæðar okkar.
Það er Ijóst að þátttaka í
þessu myndi kosta
verulega skriffinnsku, þótt
hún væri í lágmarki.
Loks fellur ýmislegt í
framkvæmd þessara mála
innan EB illa að þeim
venjum sem við höfum í
frammi í viðskiptum okkar.
Til dæmis erákvæði um að
útboðstími skuli vera 52
dagar í opnum útboðum,
en að meðaltali er hann 21
dagur hjá okkur. Stofnanir
okkartaka ákvarðanir
yfirleitt seint og útboðstími
verður því óhjákvæmilega
stuttur. Ekki síst vegna
þess að við verðum að fá
allt strax og helst í gær.
Ákvarðanirokkar í
efnahags- og
framkvæmdamálum eru
einfaldlega þannig að það
er hætt við að okkur þættu
reglur
Evrópubandalagsins stífar
og hefta okkur.
Viðfyrstu athuganirsé ég
ekki að formleg þátttaka í
þessu samstarfi geti
skapað okkur verulega
hagstæðari innkaup."
— Er þá ekki eftir
miklu að sækjast
fyrir okkur í
samningum við
Evrópubandalagið
í þessum efnum?
yyMér virðist að
fyrirhöfnin og bindingin
sem samningur af þessu
tagi hefði í för með sér
takmarki ávinninginn sem
við gætum haft af þessu.
Þetta eru þungar reglur að
eltast við.“
- Máþáekki
búast við að þróun
innri markaðar
Evrópubandalags-
ríkjanna geti leitttil
hagstæðari
innkaupa fyrir
okkur íslendinga?
MÞað er líklegt að
þróunin á Evrópumarkaði
geti haft þau áhrif að
innkaup okkar verði með
árunum enn hagstæðari
en nú er. Meðal annars að
þróunin hafi áhrif á það
hvernig við veljum það
sem við kaupum. Við
mættum hugsa meir um
það hvað við getum og
þurfum, minna um það
hvaðokkurlangarí-bæði í
mannvirkjum og
tækjabúnaði. Eftir því sem
heimurinn minnkar
verðum við að taka aukið
tillit til aðstæðna umhverfis
okkur. Evrópumarkaðurinn
mun því vafalítið veita
okkur aukið aðhald í að
vanda útboð og innkaup
fyrir opinbera aðila. í þeim
efnum gæti ég trúað að við
þyrftum að athuga margt
betur og taka mið af efnum
og ástæðum hjá þjóðinni. “